Miklu meira en ágætis byrjun

Doktor Gunni rýnir í Palm Trees In The Snow og dansar af kæti.

Miklu meira en ágætis byrjun
Kári Egilsson „Stað­reyndin er svo nátt­úr­lega sú að Kári er góður. Hann er eig­in­lega hel­víti góður,“ skrifar Dr. Gunni um tón­list­ar­mann­inn Kára Egilsson. Mynd: Davíð Þór
Tónlist

Kári - Palm Trees In The Snow

Gefðu umsögn

Nokkur umræða var á dög­unum um kúlt­úr­börn og þótti ein­hverjum, sem ekki fædd­ust með menn­ing­ar­skeið í munni, á sig hallað. Kári Egilsson er aug­ljós­lega kúlt­úr­barn ver­andi einka­sonur Egils Helga­sonar, dáð­asta menn­ing­ar­páfa lands­ins. Ekki er Egill þó þekktur fyrir til­þrif á tón­list­ar­svið­inu. Hann söng reyndar og spil­aði á harm­óníku með Gaukunum upp úr 1980, en Kári græðir ekki annað á pabba sínum en að hafa greini­lega fengið gott tón­list­ar­upp­eldi og sá gamli er eðli­lega stoltur faðir og á Facebook-síðu hans hefur verið hægt að fylgj­ast með fram­gangi Kára síðan hann byrj­aði sjö ára að spila á píanó. Kannski er ein­hver annar Kári þarna úti sem er alveg jafn góður en fær engin tæki­færi því pabbi þessa Kára keyrir sendi­bíl og er bara með 62 fylgj­endur á Facebook. Held samt örugg­lega ekki. Þetta virkar ekki svona, ekki í popp­inu alla­vega. Ef það er eitt­hvað í þig spunnið muntu upp­skera eins og þú sáir, en ef það klikkar er svo sem mann­legt að kenna ein­hverju öðru um en eigin léleg­heitum.

Stað­reyndin er svo nátt­úr­lega sú að Kári er góður. Hann er eig­in­lega hel­víti góður. Hann er rétt skrið­inn yfir tví­tugt, en mætir hér full­mót­aður og fum­laus eins og sjó­aður stór­popp­ari með tólf laga frum­samda sóló­plötu þar sem hun­ang lekur af hverju strái. Ég man í fljótu bragði ekki eftir jafn sterku byrj­enda­verki frá íslenskum popp­ara.

„Kári veldur þessu öllu því lögin eru svo fjandi vel samin og meló­díurnar grípa ljúft en örugg­lega.“

Hér er kannski ekki verið að brjóta blað í tón­list­ar­þró­un­ar­sög­unni. Áferðin á tón­list­inni er sallafínt snekkju­popp í anda þess sem flott­ast þótti upp úr 1975, Steely Dan, Supertramp, Fleetwood Mac og sú deild. Ég heyri líka oft Brian Wilson strauma og þá beint yfir í Gunnar Þórð­ar­son og fyrstu sóló­plötu hans og jafn­vel djas­spoppilm frá JFM og plötu hans, Horft í roð­ann. Stundum finnst mér eins og útvarps­þátt­ur­inn Lögin við vinn­una sé kom­inn í loftið og Gilbert O’Sullivan sé mættur með nýtt lag.

Kári veldur þessu öllu því lögin eru svo fjandi vel samin og meló­díurnar grípa ljúft en örugg­lega. Lögin eru flest í miðl­ungs tempói, yfir­veguð og svöl, aldrei keyrt upp í ein­hvern stuð­hraða, en stundum skipt niður í ang­ur­vært „ballads“, eins og Bo myndi segja. Kári hefur bjarta og góða söng­rödd, spilar öll píanó og hljóm­borð á plöt­unni og hefur frá­bærar hjálp­ar­hellur, Albert Finn­boga­son (gít­ar­leik­ara Grísalappalísu og fjöl­margt annað) þeirra mik­il­vægastur. Albert tekur upp og pródúserar og spilar mest allan gítar og bassa á plöt­unni. Platan hljómar veru­lega „djúsí“ og er full af nettum smá­at­riðum, en með sterkan heild­ar­svip og áferð. Hér eru vissu­lega mörg frá­bær lög eins og Somet­hing Better, Sleepwalking, The Backbeat, Into The Blue og We Were Never Here, en ekki kem ég þó auga á mögu­legan risa­hitt­ara, þó allt sé mögu­legt með heppni og/eða Tik Tok veiru.

Text­arnir eru á ensku, sem er alltaf verra og í mínu til­felli gera það að verkum að ég hlusta eig­in­lega lítið á þá og pæli ekk­ert í þeim. Þeir eru bara þarna, eins og bragð­lítil þistil­hjörtu á bragð­góðri pitsu. Vonandi verður texta­blað með vín­yl­plöt­unni sem á að koma út í sumar, svo maður kom­ist í betra sam­band við text­ana, eins og stendur er verkið ein­ungis fáan­legt í streymi. Plötu­umslagið gerði snill­ing­ur­inn Halldór Bald­urs­son, og sýnir teikni­mynda-Kára arka snjó innan um pálma­tré – veit ekki alveg með þetta umslag. Mér finnst teikni­mynda­fíl­ing­ur­inn ekki alveg passa við inni­haldið.

Palm Trees In The Snow er stór­skemmti­leg og góð plata – algjör­lega frá­bært byrj­enda­verk – og það besta er að Kári er bara rétt lagður af stað. Hann á von­andi eftir að gleðja okkur með meiri popp­snilld um ókomin ár, en mér skilst að hann sé marg­faldur í roð­inu og lumi líka á djas­s­plötu. Því meira, því betra, segi ég nú bara.


Útgef­andi: Alda Music
Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kalla Karlsdóttir skrifaði
    Svo sammála, og hlakka til að heyara góðan jazz frá jonum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár