„Ég fékk ekki að vera ég – þess vegna hætti ég“

Ríkjandi við­mið í valda­kerf­inu gera það að verkum að sumt stjórn­mála­fólk höndlar áreiti betur en annað. „Í gegnum tíð­ina hafa hvítir, mið­aldra, íslenskir, með­al­greindir karlar, í með­al­góðu formi, notið virð­ingar og farið með vald yfir fjár­munum, for­gangs­röðun og skil­grein­ingum í sam­fé­lag­inu,“ segir Sóley Tóm­as­dóttir. Því þarf að breyta.

„Ég fékk ekki að vera ég – þess vegna hætti ég“
Má segja hvað sem er við stjórn­mála­fólk? Þeirri spurn­ingu var reynt að svara á fundi Félags stjórn­mála­fræð­inga í gær. Sóley Tóm­as­dóttir, kynja- og fjöl­breyti­leika­fræð­ingur segir það ekki til­vilj­unum háð hvaða stjórn­mála­fólk verður fyrir óvæg­inni umræðu og áreiti. Umræða gagn­vart stjórn­mála­fólki sem ögrar ríkj­andi valda­kerfum með til­vist sinni er að jafn­aði óvægn­ari en gagn­vart öðru stjórn­mála­fólki.

Umræða gagn­vart stjórn­mála­fólki sem ögrar ríkj­andi valda­kerfum með til­vist sinni og stjórn­mála­þátt­töku er að jafn­aði óvægn­ari, og fólk sem ögrar ríkj­andi valda­kerfi með fram­göngu sinni verður fyrir harð­ara og per­sónu­legra áreiti en aðrir í stjórn­málum. 

Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Sóleyjar Tóm­as­dóttur, kynja- og fjöl­breyti­leika­fræð­ings, á hádeg­is­fundi um orð­ræðu og áreiti gagn­vart stjórn­mála­fólki sem hald­inn var af Félagi stjórn­mála­fræð­inga og Stofnun stjórn­sýslu­fræða og stjórn­mála í Háskóla Íslands í gær. Yfir­skrift fund­ar­ins, „Ótíma­bært sáð­lát, svik­arar og frekjur: Má segja hvað sem er um stjórn­mála­fólk?“, vísar meðal ann­ars í fyr­ir­sögn pistils sem birt­ist í Við­skipta­blað­inu í jan­úar þar sem fjallað var um mikla fylg­is­aukn­ingu Sam­fylk­ing­ar­innar eftir að Kristrún Frosta­dóttir var kjör­inn for­maður í októ­ber. Ummæli sem flokka má sem „hvað sem er“, en má segja hvað sem er?

Meðal spurn­inga sem Sóley lagði upp með í erindi sínu voru: „Er hægt að líta á áreiti sem eðli­legan hluta starfs stjórn­mála­fólks“ og „Getur óvægin umræða átt þátt í stuttum starfs­ferli stjórn­mála­fólks?“

Svo hægt sé að svara spurn­ing­unum, auk spurn­ing­ar­innar um hvort segja megi hvað sem er við stjórn­mála­fólk, segir Sóley nauð­syn­legt að setja þær í sam­hengi við ríkj­andi valda­kerfi og til­hneig­ingu þess til þess að við­halda sjálfu sér. 

„Ég gæti í raun­inni svarað öllum spurn­ing­unum svona, með einu orði, sama orð­inu: Sumt stjórn­mála­fólk verður fyrir óvæg­inni umræðu og öráreiti eða áreiti, sumt stjórn­mála­fólk getur vel lifað með óvæg­inni umræðu og jafn­vel áreiti. Og þegar ég tala um sumt fólk þá er það alls ekk­ert af neinu handa­hófi sem það er valið. Það á nefni­lega við um stjórn­mála­fólk eins og annað fólk að for­rétt­indi og hindr­anir byggja á kerf­is­lægum þáttum. Það eru engar til­vilj­anir fyrir því hvaða fólk verður fyrir barð­inu á hat­urs­orð­ræðu,“ sagði Sóley í erindi sínu. 

Ríða, drepa, giftast? 

Hún vís­aði í dæmi á sam­fé­lags­miðlum, Twitter-færslu Hildar Lil­lendahl frá 2019 þar sem hún birti þrjár myndir af níu fyrr­ver­andi ráð­herrum ásamt spurn­ing­unni: „Ríða, drepa, gift­ast?“, sam­kvæm­is­leik sem eflaust margir kann­ast við þó deila megi um skemmt­ana­gildi hans. Færsla Hildar vakti mikið umtal.  

„Ég er alveg viss um að þetta var mjög óþægi­legt fyrir þá Sighvat, Guðna og Jón. Þeim þykir örugg­lega ekk­ert gaman að láta hæð­ast að sér, gera sig að kyn­ferð­is­legum við­föngum. Það var líka tekið til varna, trúðu mér. Fullt af fjöl­miðlum fjöll­uðu um málið. Fullt af  fólki greip til varna, krafð­ist þess að Hildur, að það glæpa­kvendi yrði rekið úr vinnu, dregin til ábyrgðar fyrir þetta glæp­sam­lega athæfi að hæð­ast að körlum,“ sagði Sóley í erindi sínu. 

Ef færslan er sett í sam­hengi við ríkj­andi valda­kerfi stenst fram­setn­ingin ekki sam­an­burð við aðgerða­sinna í mann­rétt­inda­bar­áttu að mati Sóleyjar. „Ef við ímyndum okkar að sami leikur yrði leik­inn á kostnað Eddu Falak, Hildar Lil­lendahl og Freyju Har­alds­dóttur, þá væri sam­hengið allt annað og alvar­legra enda væri þetta við­bót við dag­legan veru­leika þeirra þar sem ýmist er vísað í þær sem eign ein­hvers, sem kyn­ferð­is­legt við­fang eða sem væn­legt fórn­ar­lamb ofbeldis. Þessi dag­legi veru­leiki þeirra er eitt­hvað sem þær lifa við án þess að gripið sé til varna. Það er öllum sama.“

Eitt helsta markmið valdakerfisins er að viðhalda sjálfu sér

Sóley segir einkum tvennt í valda­kerfi sam­fé­lags­ins hafa áhrif á hversu miklu mót­læti stjórn­mála­fólk mætir. Annars vegar skiptir máli hversu vel fólk fellur að stað­al­mynd­inni um stjórn­mála­fólk. „Í gegnum tíð­ina hafa hvítir, mið­aldra, íslenskir, með­al­greindir karlar, í með­al­góðu formi, notið virð­ingar og farið með vald yfir fjár­munum, for­gangs­röðun og skil­grein­ingum í sam­fé­lag­inu. Þessi stað­reynd er ein af stoðum valda­kerfis sam­fé­lags­ins og eitt helsta mark­mið valda­kerf­is­ins er að við­halda sjálfu sér. Við tökum þess vegna öll þátt í að við­halda þessu valda­kerfi,“ segir Sóley. 

Hún seg­ist þó ekki vera að halda því fram að valda­kerfið sé til komið vegna þess að hvítir, mið­aldra, með­al­greindir, íslenskir karlar séu vondir. „Þeir vakna ekki á morgn­ana með það að mark­miði að úti­loka, mis­muna eða vera vondir við konur og jað­ar­sett fólk. Þetta snýst bara alls ekk­ert um karl­ana sem ein­stak­linga. Þetta snýst um sam­fé­lag sem er fast í viðjum vana sem byggja á löngu úreltum skil­grein­ingum og við­miðum og frá­vikum.“

Hins vegar segir Sóley að því rót­tæk­ari sem áform og til­lögur stjórn­mála­fólks eru, þeim mun harka­legri verður umræðan, gagn­rýnin og áreitið. „Þetta tvennt tvinn­ast svo saman, ann­ars vegar líf­fræði­legu breyt­urnar og hins vegar það hversu mikið þú notar valdið eða stöð­una til þess að brjóta upp valda­kerfið.“

Orðræða og áreitni gagn­vart stjórn­mála­fólkiAuk Sóleyjar héldu Bríet B. Ein­ars­dóttir, fjöl­miðla- og boð­skipta­fræð­ingur, og Eva Marín Hlyns­dóttir, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, erindi þar sem þær kynntu nið­ur­stöður rann­sókna sinna á orð­ræðu og áreitni gagn­vart stjórn­mála­fólki.

Sóley segir vissu­lega dæmi um konur sem notið hafa vin­sælda í stjórn­málum en flestar eiga þær sam­eig­in­legt að ögra litlu sem engu. „Vera eins hefð­bundnar og hugs­ast getur. Það eru líka til karlar sem upp­fylla öll skil­yrði um við­mið en þeir ögra svo mikið að þeir sæta meira mót­læti en aðrir. Þannig getur þetta flétt­ast saman, verið flókn­ara en það lítur út fyrir í upp­hafi, en aðal­málið er að fólk sem af ein­hverjum ástæðum ögrar hinu ríkj­andi valda­kerfi er lík­legra til að mæta ein­hvers konar mót­læti eða nei­kvæðri orð­ræðu.“

Sóley seg­ist gera sér grein fyrir því að allt stjórn­mála­fólk mætir ein­hverju mót­læti. „Það getur verið sárt og vont og lýj­andi að vinna í hörðum heimi atvinnu­fólks í opin­berum átökum. En án þess að ég vilji gera lítið úr þeim sárs­auka, því mót­læti og áhrifum nei­kvæðs umtals þá verðum við samt að þora að skoða og greina og setja það í sam­hengi við valda­kerfið.“

Send í raddþjálfun og stílisti fór í gegnum fataskápinn

Sjálf tók hún virkan þátt í stjórn­málum um tíu ára skeið, fyrst sem vara­borg­ar­full­trúi árið 2006 og sem borg­ar­full­trúi fyrir Vinstri græn frá 2009 til 2016, þegar hún baðst lausnar. Hat­urs­orð­ræða var stór ástæða þess að hún sagði skilið við stjórn­málin, en einnig hvernig við­brögð hún fékk innan stjórn­mál­anna um hvernig hún átti að bregð­ast við. 

„Ég fékk ekki að vera ég. Þess vegna hætti ég.“

„Þar var bara þöggun. Ég átti bara að verða dug­legri. „Vertu bara harð­ari, ekki lesa kommentin, stattu þig stelpa, hættu þessu“. En, á sama tíma var ég send í radd­þjálfun og það kom stílisti heim til mín og tók til í fata­skápnum mínum til þess að fólk myndi frekar kjósa mig og fólk bað mig ítrekað um að breikka mig, hætta að tala um fem­in­isma, setja á mig vara­lit, ekki vera svona reið, ekki vera svona, ekki vera hinsegin, af því að það hent­aði ekki sam­fé­lag­inu. Á sama tíma og við­bragðið var í raun­inni: „Mættu þessu, gerðu bara það sem kommenta­kerfin eru að segja þér að gera“. Og það er hluti af þessu öllu saman. Ég fékk ekki að vera ég. Þess vegna hætti ég,“ segir Sóley. 

Flúði land og pakkaði sér inn í bómul

Fjöl­miðlar bera mikla ábyrgð í bar­átt­unni gegn hat­urs­orð­ræðu og sam­fé­lagið væri betra ef við værum öll gagn­rýnni á það sem er sett fram að mati Sóleyjar „Það er mitt „passion“ í líf­inu að greina og segja frá grein­ingum mínum á því hvernig valda­kerfið er að birt­ast og við­halda sér í sam­skiptum okkar. Það skiptir ekki bara máli hvernig líf­fræðin er eða hvaða hópum þú til­heyrir líf­fræði­lega heldur líka hvernig þú sam­samar þig þeim og hvernig þú hagar þér. Og ef þú ert ekki að haga þér í sam­ræmi við við­teknar venjur, um það hvernig þú átt að vera sem karl eða kona eða fötluð mann­eskja, eða ef þú til­heyrir ein­hverjum öðrum jað­ar­hópi, þá ertu lík­legri til að mæta meira mót­læti. Og þetta er eitt­hvað sem við þurfum að vera með­vit­aðri um. Þeim mun meiri upp­lýs­ingar sem koma fram um þetta, þeim mun lík­legra er að fólk átti sig á að það er búið að vera að haga sér eins og asnar.“

Sjö ár eru liðin frá því að Sóley sagði skilið við stjórn­málin en hún er hægt og rólega að leggja sitt að mörkum í sam­fé­lags­um­ræð­una á ný. „Ég fór út úr umræð­unni. Ég flutti til útlanda. Ég flúði land, hrein­lega, og pakk­aði mér inn í bómul í sirka tvö ár, tók eig­in­lega engan þátt í neinni opin­berri umræðu og vann mjög mikið úr „burnout“-inu og van­líð­an­inni og ofbeld­inu sem ég hafði orðið fyrir. Svo fór ég smátt og smátt að vinna mig til baka aftur, kannski svona á þriðja ári eftir að ég hætti í póli­tík kom ég til baka.“ 

„Þeim mun meiri upp­lýs­ingar sem koma fram um þetta, þeim mun lík­legra er að fólk átti sig á að það er búið að vera að haga sér eins og asnar.“

Í ófá skipti hefur hún samt sem áður þurft að loka sam­fé­lags­miðlum og bakka í vörn. „Ég finn það í dag að ég trig­ger­ast en það ger­ist kannski einna helst þegar að ég sé að það eru konur sem verða fyrir árásum í fjöl­miðlum, það er það sem var erf­ið­ast fyrir mig, ég þorði ekki að lesa fjöl­miðla sjálf á morgn­ana um tíma því að ég vissi ekki hvað yrði sagt um mig eða hvernig það yrði afbakað. Þegar það er til dæmis ráð­ist á Eddu Falak eða ein­hverjar af þessum konum sem núna eru í brodd­inum, þá finn ég að þá kviknar þessi van­líðan, bæði and­lega og lík­am­lega.“

Fjölmiðlar næra hatursorðræðuna

Mikil vinna er fram undan í bar­átt­unni gegn hat­urs­orð­ræðu og íslenskt sam­fé­lag er í raun skammt á veg komið að mati Sóleyjar. „Mér finnst við ekki vera komin það langt að við getum farið að benda á ger­endur af því að þetta er hluti af svo stóru vanda­máli, áhrifin koma úr svo mörgum áttum, ekki bara frá ein­hverjum dólgum á net­inu heldur líka frá vel mein­andi fólki sem er að reyna að halda mér í skefjum.“

Fjöl­miðlar geta samt sem áður stigið stórt skref með því að loka kommenta­kerfum. „Það þarf að vakta þetta og það er bara ábyrgð­ar­hluti að ákveða að gera það ekki. Fjöl­miðlar eru bein­línis að næra hat­urs­orð­ræð­una, ég veit ekki hversu margar fréttir hafa verið skrif­aðar um mig bein­línis til að næra hat­urs­orð­ræð­una, það er á ábyrgð fjöl­miðla að koma í veg fyrir það.“

Til að ná sterk­ari tökum á bar­átt­unni gegn hat­urs­orð­ræðu þarf að byrja á að greina orð­ræð­una. „Svo getum við farið að skoða hvað við getum farið að gera til að breyta því. Greining er breyt­ing­ar­afl,“ segir Sóley og tekur dæmi. „Um leið og við vissum hvað hrút­skýr­ing var gátum við farið á benda á það og þar með var hægt að segja: Hættu þessu. En áður en við höfðum skil­grein­ingu á hlutnum gátum við ekki barist gegn honum. Það þarf að greina þetta miklu, miklu betur.“

Hvað hat­urs­orð­ræðu og stjórn­mála­fólk varðar segir Sóley að ef stuðla eigi að opinni og lýð­ræð­is­legri umræðu í stjórn­málum þarf  að tryggja að fólk hafi sama aðgang að henni. 

„Til þess að svo geti orðið þurfum við að horfast í augu við það að fólk situr undir mis­jafn­lega harka­legri umræðu, verður fyrir mis miklu áreiti í starfi og það er vanda­mál sem við þurfum að finna lausnir á, ef að við viljum að fólk geti raun­veru­lega haft áhrif án þess að leggja eigin vel­ferð og geð­heilsu að veði.“

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Sólveig Bjarnadóttir skrifaði
    Mögnuð hún Sóley!
    0
  • Árni Ingi Ríkharðsson skrifaði
    Oft kemst stjórnmála fólk upp með það að segja ósatt til þess að vera kosið lofar að bæta kjör eða leikskóla plássi eða þessu eða hinu kanski er máð einhver hluti af vandamálinu
    0
  • Kristján Aðalsteinsson skrifaði
    Greinilegt að hún þurfi hjálp inlōgn
    -15
  • Kristján Aðalsteinsson skrifaði
    Guð min hvað hún er geðbiluð grei ég hef samhuð með soley tomarsdottir hvað hún þarf fara innleg á geðdeild
    -14
    • Árni Jónsson skrifaði
      Ég hélt í smá stund að kannski væri Sóley að oftúlka orðræðuna gegn sér.

      Svo las ég commentið þitt.
      23
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár