„Verðbólgan ætlar að verða þrálátari en spáð var“

For­sæt­is­ráð­herra segir að ástæður þrá­látrar verð­bólgu séu marg­þættar. Þær séu meðal ann­ars vegna aðstæðna – fyrst í heims­far­aldri og svo þegar stríðið í Úkraínu skall á. „Kost­ur­inn fyrir okkur hér á Íslandi, miðað við ann­ars staðar í Evrópu, er að það er margt sem vinnur með okkur. Þá vil ég sér­stak­lega nefna að hér er kröft­ugur vöxtur, það eru mikil umsvif í hag­kerf­inu og skulda­staðan er ágæt í alþjóð­legu sam­hengi.“

„Verðbólgan ætlar að verða þrálátari en spáð var“
Vonast eftir far­sælli lend­ingu í kjara­málum Katrín segir að gríð­ar­legu máli skipti að far­sæl lend­ing náist í við­ræðum um kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að til þess að ná tökum á verð­bólg­unni verði ákveðnir þættir að vinna saman; pen­inga­stefnan, rík­is­fjár­málin og vinnu­mark­að­ur­inn. 

Þetta kom fram í máli hennar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar spurði hana meðal ann­ars hvað rík­is­stjórnin ætl­aði að gera til að Íslend­ingar næðu í lang­þráðan stöð­ug­leika.

Heim­ildin greindi frá því í morgun að verð­bólga hefði auk­ist milli mán­aða en hún fór í tveggja stafa tölu í fyrsta sinn í 14 ár og mælist nú 10,2 pró­sent. Þetta er í fyrsta sinn síðan í sept­em­ber 2009 sem verð­bólga fer yfir 10 pró­sent. Þá var verð­bólgan á nið­ur­leið eftir efna­hags­hrunið og mæld­ist 10,8 pró­sent.

Aðstæður kalli á meiri aga í ríkisfjármálunum

Þor­gerður Katrín benti á þessa hækkun í fyr­ir­spurn sinni. „Við erum að upp­lifa vinnu­mark­að­inn, þar er rembihnútur í gangi og allir í dag að tala meðal ann­ars um hvaða þátt krónan spilar í þessu öllu saman. Aðstæður, eins og þær eru í dag, vinna að minnsta kosti ekki með heim­il­unum, almenn­ingi eða venju­legu fólki, þvert á móti. Við sjáum meðal ann­ars miklar hækk­anir á mat­ar­körf­unni og þar eru lið­irnir sem hækka mest und­an­þegnir sam­keppni. Það ýtir undir að mínu mati, og við sjáum það, auknar verð­hækk­anir á kostnað neyt­enda og heim­ila en rík­is­stjórnin sjálf gerir ekk­ert til að liðka fyrir. 

Það liggur við að þurfi að senda út leit­ar­hunda að ráð­herrum í rík­is­stjórn­inni sem hafa raun­veru­legan áhuga á frelsi og sam­keppni og hvaða þýð­ingu það hefur fyrir neyt­endur. Við sjáum líka í fréttum að mörg heim­ili núna hafa ekki tæki­færi á að end­ur­fjár­magna sig og sín lán og bæta stöðu sína, því þau eru föst. Þau hafa staðið í skilum með lánin fram að þessu en geta ekki end­ur­fjár­magnað sig. Því bitnar þetta á allan hátt á heim­ilum í land­inu. En þau þurfa að sjálf­sögðu, eins og fyr­ir­tækin, fyr­ir­sjá­an­leika og stöð­ug­leika, en við vitum að það þarf að fara í raun­veru­legar aðgerðir til að ná þessum stöð­ug­leika. Við þurfum að fara í það að end­ur­skoða vinnu­mark­aðslíkanið. En þessi aðstaða kallar líka á meiri aga í rík­is­fjár­mál­unum og honum er ekki fyrir að fara í dag,“ sagði þing­mað­ur­inn. 

Stöð­ug­leik­inn í for­gangÞor­gerður Katrín segir að setja þurfi stöð­ug­leika í for­gang.

Spyrði hún ráð­herr­ann hvort eitt­hvert plan væri til að taka á þessum „lausa­tökum í rík­is­fjár­málum“ eða væri áætl­unin bara að halda áfram á bens­ín­gjöf­inni í rík­is­út­gjöldum og víkka út lán­töku­heim­ildir út í hið óend­an­lega og „reka ríkið í raun­inni áfram á okur­lánum“. „Þið munið að við erum með hæstu vaxta­gjöldin innan OECD og því má segja að ríkið sé að taka lán til að redda sér fyrir horn vegna útgjalda­þenslu í rík­is­fjár­málum. Það virkar nokkurn veg­inn eins og ríkið sé komið af stað í blússandi „biss­ness“ í smá­lána­við­skiptum. Því þurfum við að setja stöð­ug­leika í for­gang. Hvað ætlar rík­is­stjórnin að gera til að við náum í lang­þráðan stöð­ug­leika, því það er langt í hann?“ spurði hún. 

Mikilvægt að skoða leiðir til að beita frekara aðhaldi án þess að skerða grunnþjónustu

Katrín svar­aði og sagði að það að ná tökum á verð­bólg­unni væri stærsta við­fangs­efnið sem Íslend­ingar stæðu frammi fyrir núna. „Ég við­ur­kenni að ég hefði viljað sjá að mæl­ingin í dag hefði ekki farið upp fyrir 10 pró­sent markið. Verð­bólgan ætlar að verða þrá­lát­ari en spáð var, það liggur fyrir. Ástæð­urnar eru marg­þættar og við gerum okkur öll grein fyrir því sem hér erum að meðal ann­ars vegna aðstæðna, fyrst í heims­far­aldri og svo þegar stríðið skall á, erum við að kljást við verð­bólgu á mjög breiðum grunni. Kost­ur­inn fyrir okkur hér á Íslandi, miðað við ann­ars staðar í Evrópu, er að það er margt sem vinnur með okkur. Þá vil ég sér­stak­lega nefna að hér er kröft­ugur vöxtur, það eru mikil umsvif í hag­kerf­inu og skulda­staðan er ágæt í alþjóð­legu sam­hengi,“ sagði hún. 

„Hvað ætlar rík­is­stjórnin að gera? Rík­is­stjórnin hefur auð­vitað við fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps boðað ákveðið aðhald. Hins vegar er það alveg rétt að útgjöld juk­ust milli umræðna en það var vegna brýnna mála. Ég vil þá sér­stak­lega nefna heil­brigð­is­mál og lög­gæslu sem hátt­virtur þing­menn voru sam­mála um að bæta þyrfti meira í. Aðra aukn­ingu mátti að mörgu leyti rekja til ann­arra þátta sem meðal ann­ars eru tækni­legir þættir og varða það hrein­lega hvernig við stöndum skil á reikn­ingum okkar,“ sagði Katrín jafn­framt. 

Henni finnst hins vegar mik­il­vægt núna að skoða leiðir til að beita frekara aðhaldi án þess að skerða þessa grunn­þjón­ustu sem sé mik­il­væg og sam­staða hafi verið um á Alþingi að bæta. „Að við skoðum leiðir til frek­ari tekju­öfl­unar. Síðast en ekki síst skiptir máli að við horfum líka á hvað við getum gert, ekki bara í gegnum rík­is­fjár­málin heldur í sam­fé­lag­inu.

Ég vil nefna ábend­ingar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Ég vil nefna mat­væla­verð í land­inu þar sem ný mat­vöru­gátt verður opnuð í næsta mán­uði sem mun gera neyt­endum kleift að fylgj­ast með þróun á verð­lagn­ingu mat­vöru og ég vil nefna þá vinnu sem stendur yfir í inn­við­a­ráðu­neyt­inu varð­andi leigu­mark­að­inn,“ sagði hún í fyrra svari. 

Vill fá skýrari tóna frá ríkisstjórninni

Þor­gerður Katrín sagði í fram­hald­inu að henni fynd­ist sviðs­skrekkur í rík­is­stjórn­inni. „Við munum COVID, þá voru haldnir blaða­manna­fundir liggur við viku­lega hjá rík­is­stjórn­inni. En þegar við erum að upp­lifa núna verð­bólgu sem er komin í blússandi sókn þá er eins og það sé eng­inn í marki hjá rík­is­stjórn­inni þegar kemur að heim­ilum lands­ins, bara eng­inn. Rík­is­stjórnin er ekki til staðar. Ég vil minna á að útgjöldin á milli umræðna fóru úr 90 millj­örðum miðað við fram­lagn­ingu fjár­laga­frum­varps­ins í 120 millj­arða og varð­andi þá þætti sem hæst­virtur ráð­herra bendir á þá fór ekki nema brota­brot í aukn­ingu á nákvæm­lega þeim grunn­þáttum sam­fé­lags­ins. Það er ein­hver beygur í rík­is­stjórn­inni við að taka almenni­lega á rík­is­út­gjöldum. 

Ég und­ir­strika að það er eins og rík­is­stjórnin vilji reka sig áfram á smá­lánum frá degi til dags eða mán­uði til mán­aðar. Viðreisn var eini flokk­ur­inn sem sagði bók­staf­lega nei við auknum lán­töku­heim­ildum til rík­is­sjóðs af því að við vildum strax setja aga í þennan gal­skap hjá hæst­virtri rík­is­stjórn. Mér finnst miður að það skuli ekki koma hér skýr­ari tónar frá rík­is­stjórn­inni um hvernig hún ætlar að vinna bug á þess­ari verð­bólgu sem er orðin mjög alvar­leg og er með mun breið­ari skírskotun nú en áður,“ sagði hún. 

Skiptir gríðarlegu máli að farsæl lending náist í kjarasamninga á vinnumarkaði

For­sæt­is­ráð­herra kom aftur í pontu og þakk­aði Þorgerði Katrínu fyrir „túlkun hennar á rík­is­stjórn­inni“. 

„Að sjálf­sögðu get ég ekki tekið undir þá túlkun. Það sést best á því að við gripum strax til aðgerða þegar verð­bólgan fór af stað við að verja hina tekju­lægri hópa. Ég tel að við munum áfram þurfa að hafa augun á þeim bolta því að það eru þeir hópar sem finna mest fyrir áhrifum verð­bólg­unnar. Ég nefndi hér áðan þá vinnu sem stendur yfir hjá hæst­virtum inn­við­a­ráð­herra og varðar leigu­mark­að­inn. Þar er gert ráð fyrir því að sá hópur, þar sem aðilar vinnu­mark­að­ar­ins sitja, geti skilað til­lögum jafnt og þétt og þar verður að horfa sér­stak­lega á leigu­mark­að­inn því þar eru tekju­lægstu hóp­arnir. 

Ég vil líka nefna það aðhald sem ég tel að við höfum verið að sýna og eigum að halda áfram að sýna í rík­is­rekstri án þess þó að ganga á grunn­þjón­ust­una. Svo vil ég nátt­úr­lega segja það sem blasir við, það skiptir gríð­ar­legu máli að far­sæl lend­ing náist í kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði. Það er auð­vitað lyk­il­þáttur í því að við náum tökum á verð­bólg­unni, að allir þessir þættir vinni saman; pen­inga­stefna, rík­is­fjár­mál og vinnu­mark­aður,“ sagði Katrín. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Svik, lygar og fals þessarar tuðru katrínar jakopsdóttur ætlar að vera þrálátari en riðuveiki í íslensku sauðféi.
    Endaðu þetta riðlunar samband við foringja stærstu skipulögðu glæpasamtök Íslands, sjálfstæðisflokkinn og þá gætir þú katrín jakopsdóttir ef til vill komið í veg fyrir að þinn falski flokkur þurkist út í næstu kosningum.
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Eins og vanalega er öllu og öllum öðrum um kennt í stað þess að viðurkenna að þetta er heimatibúinn vandi fræðingliðs á mála auðugra lögaðila. Frekar einfalt.. tökum "follow the money" á dæmið og staðreyndirnar blasa við. Og mann hryllir við því að menn tali um að þetta sé eitthvað óvænt.. því verðbólgan er hönnuð... kerfið er manngert og erlendu breytistærðirnar vikta miklu minna en menn halda fram. Einföld tölfræðileg greining sýnir hvar fylgnin liggur milli orsaka og afleiðinga... og nær alltaf er hún sterkust milli óráðsíu óvandaðra ótryggra vinnubragða fagurgalanna og aukins hagnaðs auðugra lögaðila og lélegri lífsgæða lifandi lögaðila.

    Ef peningalíkan Seðlo yrði lögð sem prófverkefni fyrir útskrift úr Háskóla er eins gott að prófdómararnir þurfi ekki að dæma eftir árangri.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár