Verðbólgan eykst og fer í tveggja stafa tölu í fyrsta sinn í 14 ár

Verð­bólga jókst milli mán­aða og tólf mán­aða verð­bólga mælist nú 1,39 pró­sentu­stigum meiri en fyrir mán­uði. Verð á mat­vöru hækkar.

Verðbólgan eykst og fer í tveggja stafa tölu í fyrsta sinn í 14 ár
Seðla­banka­stjóri Seðla­banki Íslands hefur það hlut­verk að tryggja verð­stöð­ug­leika. Hann beitir tólum sínum til að reyna að halda verð­bólgu í námunda við verð­bólgu­mark­mið, sem er 2,5 pró­sent. Verð­bólgan er nú komin í tveggja stafa tölu, í fyrsta sinn síðan í sept­em­ber 2009. Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri. Mynd: Heiða Helgadóttir

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­­aði um 1,39 pró­­sent milli mán­aða. Tólf mán­aða verð­­bólga mælist nú 10,2 pró­­sent en hún mæld­ist 9,9 pró­­sent í síð­­asta mán­uði og 9,6 pró­sent í des­em­ber 2022.

Tólf mán­aða verð­­bólga var 5,7 pró­­sent í jan­ú­ar í fyrra og hefur því auk­ist veru­lega síð­ast­liðið ár. 

Þetta er í fyrsta sinn síðan í sept­em­ber 2009 sem verð­bólga fer yfir 10 pró­sent.

Þá var verð­bólgan á nið­ur­leið eftir efna­hags­hrunið og mæld­ist 10, 8 pró­sent.

Samkvæmt til­knn­ingu Hagstofu Íslands voru helstu ásætður þess að vísi­talan hækk­aði þær að verð á mat­vörum hækk­aði um 1,9 pró­sent, verð á fatn­aði og skóm hækk­aði um 6,8 pró­sent og verð á hús­gögnum, heim­il­is­bún­aði og fleira hækk­aði um 8,7 pró­sent. 

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár