Ekki verið rætt í ríkisstjórninni að setja lög á deilu Eflingar og SA

Samkvæmt félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra mun rík­is­stjórnin ræða kjara­deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins á morgun. Hann segir að mögu­lega sé æski­legt að fá úrskurð Hæsta­réttar eftir að Efling vann dóms­mál sitt í Lands­rétti og bar því ekki að afhenda rík­is­sátta­semj­ara kjör­skrá vegna miðl­un­ar­til­lögu emb­ætt­is­ins.

Ekki verið rætt í ríkisstjórninni að setja lög á deilu Eflingar og SA

Rík­is­stjórnin mun ræða kjara­deilu Samtaka atvinnu­lífs­ins (SA) og Eflingar á fundi á morgun. Hún mun fyrst og fremst fara yfir stöð­una á mál­inu en ekki und­ir­búa neinnar sér­stakar aðgerðir af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta kom fram í máli Guð­mundur Inga Guð­brands­sonar félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. 

Allt er í hnút í deilu Eflingar og SA en at­kvæða­greiðsla um verk­bann á fé­lags­menn stétt­ar­fé­lags­ins hófst í dag og lýk­ur á há­degi á morg­un. Verk­föll Efl­ing­ar eru haf­in að nýju og fleiri hóp­ar inn­an fé­lags­ins ljúka at­kvæða­greiðslu um slík í dag. Við­bú­ið er að áhrif kjara­deil­unn­ar á sam­fé­lag­ið verði gríð­ar­leg á næstu dög­um og vik­um semj­ist ekki.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins spurði í fyrri fyr­ir­spurn sinni ráð­herr­ann þriggja spurn­inga er varða það „ófremd­ar­á­stand sem nú er uppi á vinnu­mark­aði“. Í fyrsta lagi spurði hann hvort Guð­mundur Ingi hefði rætt við settan rík­is­sátta­semj­ara um hvort hann teldi sig á ein­hvern hátt bund­inn af fyr­ir­heiti um að vísa ágrein­ingi ekki til Hæsta­réttar varð­andi kjör­skrá Eflingar.

Sig­mundur DavíðFormaður Mið­flokks­ins beindi fyr­ir­spurnum sínum til félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra á Alþingi í dag.

„Það hefur komið fram að það er ekki hægt, það er bannað laga­lega að gefa frá sér áfrýj­un­ar­rétt­inn fyrir fram. Svo­leiðis að hafi verið sam­komu­lag hefur það verið ein­hver sam­eig­in­legur per­sónu­legur skiln­ingur milli rík­is­sátta­semj­ara og for­manns Eflingar en síðan þá hefur for­maður Eflingar gert kröfu um að rík­is­sátta­semj­ari víki frá mál­inu og annar maður er kom­inn í hans stað,“ sagði Sig­mundur og spurði hvort ráð­herr­ann hefði rætt þetta við settan rík­is­sátta­semj­ara.

Í öðru lagi spurði Sig­mundur Davíð hvort rætt hefði verið innan rík­is­stjórn­ar­innar að setja lög á þessa vinnu­deilu og ein­hver und­ir­bún­ingur verið unnin til að bregð­ast við, teld­ist þörf á því.

„Loks í þriðja lagi þá hefur því verið haldið fram í tengslum við þessa deilu að fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þurfi að fá hærri laun en þeir sem vinna sam­bæri­leg störf á lands­byggð­inni og verið vísað í hátt leigu­verð hér. Nú hafa auð­vitað laun almennt á lands­byggð­inni verið lægri að jafn­aði en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en auk þess leggst ýmis kostn­aður á íbúa lands­byggð­ar­innar sem leggst ekki eins þungt á íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins,“ sagði þing­mað­ur­inn og spurði hvort Guð­mundur Ingi hefði skoðun á þessum mál­flutn­ingi, því að það ætti að hækka sér­stak­lega laun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu umfram það sem ger­ist á lands­byggð­inni.

Ekki „alveg einfalt mál“

Guð­mundur Ingi svar­aði og sagði að ýmis­legt hefði verið reynt í þess­ari kjara­deilu. „Í síð­ustu viku óskaði rík­is­sátta­semj­ari eftir því að vinna ekki lengur að þess­ari til­teknu deilu og ég fékk annan í hans stað til þess. Þær við­ræður fóru fram núna fyrir helg­ina og um helg­ina og nið­ur­staðan var, eins og við öll vitum, að það náð­ust því miður ekki samn­ingar. En von­andi verður hægt að taka þann þráð upp aftur því að ég geri þá kröfu til aðila vinnu­mark­að­ar­ins að þeir semji. Það finnst mér vera þeirra hlut­verk, að kom­ast að sam­komu­lagi,“ sagði hann. 

Fram kom í máli ráð­herr­ans að hann hefði ekki rætt sér­stak­lega við settan rík­is­sátta­semj­ara um það hvort hann væri bund­inn af því sem for­veri hans skrif­aði undir við stétt­ar­fé­lagið Eflingu. 

„En það hefur hins vegar komið fram sem álit ýmissa lög­fræð­inga að það sé eitt­hvað sem sé ekki hægt að gera, líkt og hátt­virtur þing­maður kom inn á. Það hefur ekki verið rætt í rík­is­stjórn að setja lög á þessa deilu. Og til að reyna að svara síð­ustu spurn­ing­unni varð­andi hvort það sé eðli­legt eða æski­legt að fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fái hærri laun heldur en fólk ann­ars staðar á land­inu, þá er auð­vitað heil­mik­ill munur á milli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og lands­byggð­ar­innar þegar kemur að ýmsum málum, miklu fleiri málum heldur en launum, meðal ann­ars hvað snýr að ferða­kostn­aði, hús­næð­is­kostn­aði, kostn­aði við hús­hitun, kostn­aði við að kaupa sér í mat­inn. Þannig að það er ekki alveg ein­falt mál,“ sagði Guð­mundur Ingi. 

Spurði hvort æskilegt væri að vísa málinu til Hæstaréttar

Sig­mundur Davíð spurði í fram­hald­inu hvort ráð­herra teldi að það gæti verið æski­legt að vísa mál­inu er varðar kjör­skrá Eflingar til Hæsta­réttar til að fá úr því skorið fyrir Hæsta­rétti hvaða reglur giltu og hvort vinnu­mark­aðslög­gjöfin eins og hún er núna virk­aði í raun. 

„Þarna virð­ist hafa komið upp mjög und­ar­leg staða þar sem miðl­un­ar­til­laga er dæmd lög­mæt en mönnum er gert erfitt fyrir að fram­fylgja henni,“ sagði hann og spyrði hvort Guð­mundur Ingi teldi að það gæti verið ráð að fá úrskurð Hæsta­réttar um þetta. „Varðandi hugs­an­lega lög­gjöf, í ljósi þess að rík­is­stjórnin hefur ekki rætt þetta nú þegar, mun þá hæst­virtur félags­mála­ráð­herra taka þetta upp í rík­is­stjórn, þó ekki væri nema til að vinna und­ir­bún­ings­vinnu ef staðan hér yrði slík að grípa þyrfti inn í?“ spurði hann. 

Óvissa hvað vinnulöggjöf varðar

Guð­mundur Ingi kom aftur í pontu og sagði að það væri mögu­lega æski­legt að fá úrskurð Hæsta­réttar í þessu máli. 

„Ég held að það sé eitt­hvað sem leiðir bara af þeirri nið­ur­stöðu sem Lands­réttur komst að, ein­fald­lega vegna þess að nú erum við með þá stöðu að hægt er að leggja fram miðl­un­ar­til­lögu en ekki að fá úr henni skorið miðað við það sem Lands­réttur setur fram. Í mínum huga er því um óvissu að ræða núna hvað varðar vinnu­lög­gjöf­ina og ég held að við getum öll verið sam­mála um að það er ekki mjög æski­legt. En ef ekki þá held ég að það sé óhjá­kvæmi­legt að við skoðum vinnu­lög­gjöf­ina hvað þetta atriði varðar. Ég held að það segi sig algjör­lega sjálft,“ sagði ráð­herr­ann. 

Varðandi það síð­asta sem Sig­mundur Davíð nefndi þá sagði Guð­mundur Ingi að þau myndu ræða þessi mál á rík­is­stjórn­ar­fundi á morgun en fyrst og fremst fara yfir stöð­una á mál­inu, ekki til und­ir­bún­ings neinna sér­stakra aðgerða af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það getur ekki verið eðlilegt að verkalýðsfélag sendi frá félagaskrá í hendur á einhverju einkafyrirtæki sem sáttasemjari velur. Slíkur aðili eða fyrirtæki væri væntanlega aðili að samtökum atvinnurekenda.

    En í lögunum er póst-atkvæðagreiðsla heimil sem væri í framkvæmd félagsins væntanlega en undir eftirliti sáttasemjara og sáttasemjara.

    En það er ljóst að endurskrifa verður og breyta verulega kaflanum sem var hent inn í vinnulöggjöfina 1996 í mikilli andstöðu launafólks og samtaka þeirra. Það verður að ríkja sátt allra sem koma að þessum málum ákvæði vinnulöggjafarinnar og þess að jafnræði ríki milli launafólks og atvinnurekenda
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár