Sýn bendir á að True Detective fái 3,6 milljarða króna úr ríkissjóði

Í árs­reikn­ingi Sýnar segir að hækkun á end­ur­greiðslum vegna fram­­­leiðslu­­­kostn­aðar kvik­­­mynda­fram­­­leið­enda í 35 pró­­­sent fyrir stærri verk­efni komi í veg fyrir að Stöð 2 geti sótt með beinum hætti um end­ur­greiðslur í kvik­mynda­sjóði vegna eigin fram­leiðslu á sjón­varps­efni. Sýn ætlar að greiða 300 millj­ónir króna í arð, eftir að hafa fengið 67 millj­ónir króna í fjöl­miðla­styrk.

Sýn bendir á að True Detective fái 3,6 milljarða króna úr ríkissjóði
Nýr for­stjóri Yngvi Hall­dórs­son tók við sem for­stjóri fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins Sýnar í lok sept­em­ber í fyrra. Mynd: Sýn

Sýn hagn­að­ist um 888 millj­ónir króna á árinu 2022. Það er umtals­vert minni hagn­aður en var árið á undan, þegar hann var 2,1 millj­arður króna. Vert er að taka fram að á því ári, 2021, var bók­færður 2,5 millj­arðar króna sölu­hagn­aður af sölu á óvirkum far­síma­innviðum. Án þess ein­skipt­is­hagn­aðar hefði Sýn skilað tapi árið 2021. Enginn slíkur hagn­aður var hins vegar bók­færður í fyrra.

Af hagn­að­inum í ár er 142 millj­ónir króna til­kom­inn vegna nýt­ingar á yfir­fær­an­legu skatta­legu tapi, sem orsakast af því að Sýn tap­aði umtals­verðum fjár­hæðum á árunum 2018, 2019 og 2020. Það þýðir á manna­máli að Sýn þurfti ekki að greiða 142 millj­ónir króna í skatta sem félagið hefði ann­ars þurft að greiða. 

Samkvæmt rekstr­ar­reikn­ingi námu tekjur Sýnar, sem er fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, næstum 23 millj­örðum króna í fyrra, sem er sex pró­sent meira en árið áður. Í árs­reikn­ingi kemur fram að helstu ástæður séu hærri far­síma­tekjur, meðal ann­ars vegna reiki-tekna sem má rekja til fjölg­unar ferða­manna á síð­asta ári, og aukn­ingar í áskriftar- og aug­lýs­inga­tekjum í fjöl­miðla­hlut­anum. Í fjár­festa­kynn­ingu er sér­stak­lega tekið fram að mik­ill vöxtur hafi verið í tekjum á frétta­vefnum Vísi, sem hefur oftar en ekki verið sá mest lesni á Íslandi á und­an­förnum miss­erum. Auk Vísis á Sýn Stöð 2 og tengdar sjón­varps­stöðvar og nokkrar útvarps­stöðvar. 

Sýn hefur þegar skrifað undir samn­ing um að selja Ljós­leið­ar­anum, dótt­ur­fé­lagi Orku­veitu Reykja­víkur, stofn­net sitt á þrjá millj­arða króna. Bók­færður sölu­hagn­aður vegna þess verður um 2,4 millj­arðar króna en kaup­verðið á að greið­ast á sex til tólf mán­uðum. Sýn mun svo leigja aðgang að net­inu af Ljós­leið­ar­anum og hefur þegar skuld­bundið sig til að kaupa slíka þjón­ustu í tólf ár. 

Sendu pillu á stjórnvöld

Athygli vekur að for­stjór­inn, Yngvi Hall­dórs­son, og stjórn Sýnar, sem leidd er af Jóni Skafta­syni stjórn­ar­for­manni og full­trúa stærsta eig­and­ans (fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gavia Invest sem á 15,7 pró­sent hlut), sjá til­efni til að gagn­rýna stjórn­völd harka­lega í skýrslu stjórnar og for­stjóra í reikn­ingnum. 

Þar segir að þrátt fyrir end­ur­teknar yfir­lýs­ingar stjórn­valda um nauð­syn þess að jafna sam­keppn­is­stöðu inn­lendra fjöl­miðla og erlendra streym­isveitna hafi stjórn­völd enn sem komið er ekki gripið til neins konar aðgerða í þá veru. Þar er sér­stak­lega nefnt að leggja skatt á erlendar streym­isveitur – á borð við Netflix, Disney+, Viaplay eða Amazon Prime – eins og tíðk­ist víða í Evrópu, þar með talið á Norð­ur­löndum. 

Á sama tíma hafi stjórn­völd leitt í lög end­ur­greiðslu­heim­ildir úr kvik­mynda­sjóði til erlendra fram­leið­enda af kvik­myndum og sjón­varps­efni sem leiða muni til end­ur­greiðslu á um 3,6 millj­örðum króna vegna eins verk­efnis. Þar er átt við ákvörðun rík­is­stjórnar Íslands að sam­þykkja frum­varp Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um að hækka end­­­ur­greiðslu vegna fram­­­leiðslu­­­kostn­aðar kvik­­­mynda­fram­­­leið­enda úr 25 í 35 pró­­­sent fyrir stærri verk­efni í maí í fyrra. Vegna þessa þurfi að sækja fjóra millj­arða króna við­bót­ar­fram­lag úr rík­is­sjóði á þessu ári miðað við upp­runa­leg áform, og heild­ar­kostn­aður vegna end­ur­greiðslna verður um 5,7 millj­arðar króna.

Þorri þeirrar upp­hæðar fer til eins verk­efnis, fram­­­leiðslu á fjórðu þátta­röð True Detective sem tekin er upp hér á landi. Því mun rík­­is­­sjóður greiða, sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum sem Sýn teflir fram í árs­reikn­ingi sínum, 3,6 millj­arða í end­­ur­greiðslur vegna kvik­­mynda­­gerðar á ár til banda­ríska fram­­leiðslu­­fyr­ir­tæk­is­ins HBO fyrir að taka upp þátta­röð hér­lend­is. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar var frum­varp Lilju keyrt í gegn í fyrra­vor sér­stak­lega til að ná True Detective verk­efn­inu til Íslands. Fyrsta stiklan úr þátta­röð­inni var birt í gær. Hægt er að sjá hana hér að neðan. 

Í skýrslu stjórnar og for­stjóra segir að sama lög­gjöf girði fyrir að Stöð 2 geti sótt með beinum hætti um end­ur­greiðslur í kvik­mynda­sjóði vegna eigin fram­leiðslu á sjón­varps­efni. 

Fjölmiðlastyrkur rúmlega fimmtungur af arðgreiðslu

Þá er gerð athuga­semd við að fram­lög úr rík­is­sjóði til Rík­is­út­varps­ins hafið verið hækkuð um 430 millj­ónir króna milli áranna 2021 og 2022, og að sú fjár­hæð sé hærri en sem nam styrkjum til allra einka­rek­inna fjöl­miðla, þ.e. ljós­vaka­miðla og dag­blaða, á sama tíma­bili. Þeir voru 381 millj­ónir króna og dreifð­ust á þriðja tug fjöl­miðla. 

Mest fengu þrjú fjöl­miðla­fyr­ir­tæki: Torg sem gefur út Frétta­blaðið og tengda miðla, Árvakur sem gefur út Morg­un­blaðið og tengda miðla og Sýn. Alls fóru 53 pró­sent styrkj­anna til þeirra en hvert fékk 66,8 millj­ónir króna. 

Stjórn Sýnar ætlar að leggja til við kom­andi aðal­fund að greiddir verði út 300 millj­ónir króna í arð vegna síð­asta árs. Það þýðir að 22 pró­sent af arð­greiðsl­unni er til­kom­inn vegna styrks­ins sem sam­stæðan fékk úr rík­is­sjóði á síð­asta ári.

For­stjóra­skipti urðu hjá Sýn í fyrra þegar Heiðar Guð­jóns­son, sem hafði verið stærsti einka­fjár­festir­inn í félag­inu sam­hliða for­stjóra­setu, til­kynnti að hann ætl­aði að hætta í kjöl­far heilsu­brests. Í lok sept­em­ber 2022 var til­kynnt að Yngvi Hall­dórs­son, sem hafði verið fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs Sýnar, myndi taka við sem for­stjóri. Sam­an­lagt var launa­kostn­aður vegna for­stjóra­starfa Heiðars og Yngva 71 milljón króna, eða um 5,9 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Má spyrja hvenær þetta stöðvar 2/Sýnar dæmi ætlar að hætta að vera á ríkisspenanum ? Stjórnendur hjá Sýn hafa verið duglegir að gagnrýna RÚV fyrir að vera til , þó allir starfsmennirnir hafi fengið sína starfsreynslu hjá RÚV ? Er ekki komið nóg ? Allir meðlimir Samtaka atvinnulífsins eru á ríkisspenanum, er ekki eitthvað að ? Nei, þetta er gamla góða spillingin.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár