1042. spurningaþraut: Hver er nú þetta?!

1042. spurningaþraut: Hver er nú þetta?!

Fyrri auka­spurn­ing á við mynd­ina hér að ofan:

Hver er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var for­seti Banda­ríkj­anna 2001-2009?

2.  Hversu margir íbúar búa í höf­uð­stað Græn­lands, Nuuk? Hér má skeika 4.000 til eða frá.

3.  Hvað hét Nuuk áður en græn­lenskt nafn var tekið upp?

4.  Fyrir réttum 20 árum kom út fyrsta sóló­plata tón­list­ar­manns sem áður hafði til­heyrt vin­sælu tríói. Platan hét Dangerously in Love en hver var og er tón­list­ar­mað­ur­inn?

5.  Hvaða Íslend­ingur hefur leikið flesta leiki í ensku Úrvals­deild­inni í karla­flokki?

6.  Í hvaða landi eru Vosgesa-fjöllin aðal­lega?

7.  Women Talking er ein þeirra kvik­mynda sem til­nefndar eru til Ósk­arsverð­launa sem besta mynd árs­ins 2022. Myndin er jafn­framt til­nefnd til sömu verð­launa fyrir hand­rit unnið upp úr öðru efni. Íslend­ingar hefðu svo gjarnan vijað að myndin fengi eina Ósk­arsverð­launa­til­nefn­ingu enn. Hverja þá og hvers vegna?

8.  Þær skamm­staf­anir sem not­aðar eru um frum­efni í lotu­kerf­inu er mjög oft auð­þekkj­an­legar af enskum heitum frum­efn­anna. O stendur fyrir oxygen (súr­efni), He fyrir hel­íum, Al fyrir alu­minium o.s.frv. Frumefni nr. 80 er hins vegar skamm­stafað Hg. Svo vill til að hvor­ugan bók­staf­inn — h eða g — er að finna hvorki í ensku eða íslensku nafni frum­efn­is­ins. Hvaða frum­efni er skamm­stafað Hg?

9.  Í enskri tungu gildir nákvæm­lega það sama um næsta frum­efni á undan í lotu­kerf­inu, númer 79. Það er skamm­stafað Au en hvorki a né u er að finna í ensku heiti frum­efn­is­ins. Eitt u er hins vegar í íslensku nafni þess. Hvaða frum­efni er Au?

10.  Hring­braut átti upp­haf­lega að ná í hring utan um Reykja­vík. En í hvaða evr­ópsku stór­borg er hið upp­runa­lega Ringstrasse sem var á sinn hátt fyr­ir­mynd af Hring­braut?

***

Seinni auka­spurn­ing:

En hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  George W. Bush. Sá yngri af Bush-feðgum, sem sé.

2.  Þar búa því sem næst 19.000 manns skv. Wikipedíu svo rétt telst vera 15 til 23 þús­und.

3.  Godthåb.

4.  Beyconcé.

5.  Hermann Hreið­ars­son.

6.  Frakk­landi.

7.  Hildur Guðna­dóttir hefði mátt vera til­nefnd fyrir tón­list­ina.

8.  Kvika­silfur — hydrag­yrum á lat­ínu.

9.  Gull — aurum á lat­ínu.

10.  Vín­ar­borg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Litli prins­inn, sögu­hetja Antoine de Saint-Exupéry. 

Á neðri mynd­inni er David Bowie.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Ath: Frumefnin eru nefnd á vísindamálinu latínu, sem var gilt fram yfir miðja 20. ölf.
    Kynna sér latínu það er málið.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár