1041. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig með eikarlaufum og stjörnu í boði!!

1041. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig með eikarlaufum og stjörnu í boði!!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hluti af plakati hvaða bíó­myndar má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver orti: „Mjög erum tregt tungu at hræra ...“ — Svo er lár­við­ar­stig með eik­ar­laufum og stjörnu fyrir að muna næstu þrjú orð kvæð­is­ins.

2.  En hver telja flestir að sé höf­undur þessa: „Þó að kali heitan hver, / hylji dali jök­ull ber, / steinar tali og allt hvað er, / aldrei skal ég gleyma þér.“

3. Hvaða leik­kona leikur aðal­hlut­verkið í mynd­inni Napól­e­ons­skjölin?

4. Árið 1997 var hinn frægi Hamlet á fjölum Þjóð­leik­húss­ins. Hlut­verkið lék tæp­lega þrí­tugur leik­ari sem hafði unnið hvern leik­sig­ur­inn af öðrum árin á undan og hefur síðan haldið stöðu sinni sem einn vin­sæl­asti karl­leik­ari þjóð­ar­innar. Hann heitir ... hvað?

5. Á mið­öldum þurfti fólk í Evrópu að ganga með klingj­andi bjöllu á sér ef það þjáð­ist af ákveðnum sjúk­dómi til að vara heil­brigt fólk við. Hvaða sjúk­dómur var tal­inn svo hættu­legur?

6.  Í hvaða landi er Sixtínska kapellan?

7.  Í hvaða trú­ar­brögðum er Bodhi-tréð sagt heil­agt?

8.  Ferruccio Lamborg­hini (1916-1993) hét ítalskur athafna­maður sem varð frægur fyrir að fram­leiða til­tekna vöru sem þótti og þykir enn einkar vönduð. Hvaða vara er það?

9. Lamborg­hini gat farið að ein­beita sér að fyrr­nefndum fína varn­ingi eftir að komið vel undir sig fót­unum með því að fram­leiða skylda en þó allt öðru­vísi vöru. Segjum "grodda­legri" þó það sé ekki endi­lega rétt lýs­ing á hinum dug­mikla varn­ingi. Hverjar voru þessar fyrstu fram­leiðslu­vörur Lamborg­hinis?

10.  Hvað heitir söng­konan sem vann Idol Stjörnu­leit á Stöð 2 fyrir fáeinum vikum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða hljóm­sveit má sjá hér? Myndin er frá 2000.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Egill Skalla­gríms­son orti, eða ein­hver í hans stað. Næstu þrjú orð eru: „... eða loft­vætt ljóð­pund­ara.“ Sumir hafa lært "loft­vægi" í stað "loft­vætt" og ég gef rétt fyrir það líka!

2.  Skáld-Rósa, Vatns­enda-Rósa.

3.  Vivian Ólafs­dóttir.

4.  Hilmir Snær.

5.  Holds­veiki.

6. Vatík­an­inu.

7.  Búddisma.

8.  Sport­bílar.

9.  Trakt­orar.

10.  Saga Matt­hildur.

***

Svör við aða­spurn­ingum:

Skjá­skotið er af plakati mynd­ar­innar Alien.

Athugið að „Aliens“ er að sjálf­sögðu alvit­laust svar!

Neðri myndin er af XXX Rottweilerhundum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár