1040. spurningaþraut: Hér snýst allt um töluna 40!

1040. spurningaþraut: Hér snýst allt um töluna 40!

Þessi þema­þraut snýst um töl­una 40.

Fyrri auka­spurn­ing:

Konan á mynd­inni hér að ofan myndi halda upp á 40 ára afmæli sitt í sept­em­ber ef hún væri enn á meðal vor. Hún hét ...

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrir 40 árum fékk Pólverji einn frið­ar­verð­laun Nóbels. Hvað heitir hann?

2.  Hvað gerð­ist frétt­næm­ast á Íslandi þann 10. maí 1940?

3.  Fyrir réttum 40 árum fór blað eitt að koma út á íslensku. Fram að því höfðu lands­menn helst þekkt það á dönsku. Hvaða blað var það?

4.  Borg­ar­nes, Grinda­vík, Hvera­gerði, Sand­gerði og Þor­láks­höfn.  Þessir þétt­býl­is­staðir eru allir í 40 kíló­metra fjar­lægð frá miðbæ Reykja­víkur og er þá miðað við beina loft­línu. Og þó — einn þess­ara staða er ögn lengra frá miðbæ Reyja­víkur en hinir, eða 44-45 kíló­metra. Hver af stöð­unum fimm ætli það sé?

5.  Mikið uppi­stand varð fyrir 40 árum þegar breska blaðið The Times til­kynnti að það hefði kom­ist yfir dag­bækur frægs ein­stak­ings sem eng­inn vissi til hefði haldið dag­bækur. Þetta varð mikil sneypu­för fyrir blaðið því sér­fræð­ingar sáu strax í hendi sér að dag­bæk­urnar voru fals­aðar. En hver var frægi ein­stak­ling­ur­inn sem átti að hafa haldið dag­bæk­urnar?

6.  Hvað nefn­ist 40 ára brúð­kaups­af­mæli: a) Perlu­brúð­kaup — b) Postu­líns­brúð­kaup — c) Rúbín­brúð­kaup — d) Syk­ur­brúð­kaup — e) Tin­brúð­kaup?

7.  Fyrir réttum 40 árum var frum­sýnd 3ja kvik­myndin í mynda­röð­inni Star Wars. Hvað hét sú mynd?

8.  Vin­sælasta íslenska kvik­myndin fyrir 40 árum var hroll­vekja sem Egill Eðvarðs­son leik­stýrði og þau Lilja Þór­is­dóttir og Jóhann Sig­urð­ar­son léku aðal­hlut­verk í. Hvað hét myndin?

9.  Hver var fer­tug­asti for­seti Banda­ríkj­anna: a) Franklin Roosevelt — b) John F. Kennedy — c) Ronald Reagan — d) Barack Obama? (Athugið að einn for­set­inn á 19. öld, sem varð for­seti tví­vegis, er hér tal­inn tvisvar eins og títt er vest­an­hafs.)

10.  Fyrir réttum 40 árum, 1983, gaf efni­leg rokk­hljóm­sveit út plötu sem sló ræki­lega í gegn. Síðasta lagið á plöt­unni hét einmitt 40 — en er reyndar oft kallað How Long. Hvaða hljóm­sveit var þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hún heldur upp á fer­tugs­af­mælið sitt á morgun. Hún heitir ... hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Wałęsa.

2.  Innrás Breta á Ísland.

3.  Andrés Önd.

4.  Borg­ar­nes.

5.  Hitler.

6.  Rúbin­brúð­kaup.

7.  Return of the Jedi.

8.  Húsið.

9.  Reagan.

10.  U2. Hér er lagið:

U2 syngja og leika 40 fyrir 40 árum við Red Rock í Colorado.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Amy Winehouse.

Á neðri mynd­inni er Björt Ólafs­dóttir fyrrum þing­maður og ráð­herra.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár