1039. spurningaþraut: Hvað þýðir M-ið í nafni Agnesar biskups?

1039. spurningaþraut: Hvað þýðir M-ið í nafni Agnesar biskups?

Fyrri auka­spurn­ing:

Sjá mynd­ina hér að ofan. Við vitum ekki hvað hún kall­aði sig sjálf. En hvað köllum við hana?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir er biskup Íslands. M-ið í nafni hennar er ekki seinna skírn­ar­nafn, heldur móð­ur­nafn hennar. Hvað hét móðir hennar?

2.  Hvaða dýr nefn­ist á lat­ínu equus?

3.  Árið 1996 vann Daninn Bjarne Riis mikið íþrótta­afrek, fyrsti og (þangað til í fyrra) eini Daninn sem það hefur gert. Vakti afrek Riis hans mikla athygli og höfðu Danir Riis lengi í hávegum vegna þess. Hvaða keppni vann Bjarne Riis?

4.  Fuer­teventura, Lanzarote, La Palma, La Gomera og El Hierro eru örnefni á til­teknum stað. Það mætti reyndar bæta við tveim örnefnum í við­bót en þá yrði spurn­ingin of létt. Hvaða staður er þetta?

5.  Í landi einu tíðkast sá siður að þegar nýr þjóð­höfð­ingi tekur við, þá er valið á hann nýtt nafn. Emb­ætt­is­tíð hans er svo kennd opin­ber­lega við þetta nýja nafn. Þetta gerð­ist síð­ast 2019 þegar nýr þjóð­höfð­ingi tók við og hlaut nafnið Reiwa. Hvaða land er hér um að ræða?

6.  Í „aðeins“ 1.500 kíló­metra fjar­lægð frá Íslandi er haf­svæði eitt fremur grunnt. Togarar hafa þar oft fengið bein loð­fíla og ris­anas­hyrn­inga í veið­ar­færi sín. Hvað heitir haf­svæðið?

7.  Íslenskur rit­höf­undur skrif­aði ein­göngu fyrir börn — nema hvað ein bók að nafni Oddaflug kom út árið 2000 fyrir full­orðna. Hver er höf­und­ur­inn?

8.  Í landi einu sjálf­stæðu er kon­ungs­stjórn. Titill kon­ungs­ins á máli heima­manna er Druk Gyalpo, sem þýðir „dreka­kon­ung­ur­inn“. Dreka­kóngur síðan 2006 hefur verið karl sem nú er rúm­lega fer­tugur og heitir Jigme Khesar Namgyel Wangchuck. Hvaða land er hér um að ræða?

9.  Hver af þessum postulum er EKKI einn af postulum Jesúa frá Nasaret: Andrés, Bartóló­meus, Filippus, Jakob Alfe­us­son, Jakob Zebedeusson, Jóhannes, Júdas Ískaríot, Júdas Taddeus, Matteus, Sál frá Tarsus, Símon Pétur, Símon selóti, Tómas van­trú­aði.

10.  Í hvaða fljóti á Aust­ur­landi var gjarnan talið búa skrímsli af ein­hverju tagi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að neðan er úr nýrri íslenskri kvik­mynd. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Margrét, svo fullt nafn bisk­ups er Agnes Mar­grét­ar­dóttir Sig­urð­ar­dóttir.

2.  Hestur.

3.  Tour de France hjól­reiða­keppnin.

4.  Kanarí­eyjar.

5.  Japan.

6.  Hið kór­rétta svar er Dogger Bank en ég gef líka rétt fyrir Norð­ur­sjó.

7.  Guðrún Helga­dóttir.

8.  Bhutan.

9.  Sál frá Tarsus, síðar nefndur Páll. Hann tók sér sjálfur post­ula­nafn­bót en Jesúa valdi hann ekki, svo staða hans var allt önnur en hinna.

10.  Lag­ar­fljóti.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er end­ur­gerð af suð­ur­apanum Lucy, sem svo hefur verið kölluð.

Á neðri mynd­inni er skjá­skot úr nýju kvik­mynd­inni Napól­e­ons­skjölin.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár