1038. spurningaþraut: Hverjir héldu upp á febrúar?

1038. spurningaþraut: Hverjir héldu upp á febrúar?

Auka­spurn­ingar:

Hvað heitir konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Mán­að­ar­nafnið febr­úar er dregið af hreins­un­ar­há­tíð­inni febrúa sem einnig var kölluð lupercalíu-hátíð og var í heiðri höfð ... hvar?

2.  Cantaloupe heitir eitt afbrigði af ávext­inum ... hvaða ávexti?

3.  Hver er sú 1,5 millj­óna manna borg þar sem öllum er bannað að koma sem ekki til­heyra til­teknum trú­ar­brögðum?

4.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Tírana?

5.  Nymphom­ania var orð sem notað var bæði í geð­lækn­is­fræðum og dag­legu máli um til­tekið sjúk­legt ástand kvenna, en um karla var haft orðið satyri­asis. Þessi orð eru ekki lengur notuð og umdeilt mun vera hvort um sé að ræða sér­stakt fyr­ir­bæri eða ein­fald­lega birt­ing­ar­mynd ýmissa kvilla, and­legra og/eða lík­am­legra. En um hvað voru þessi orð notuð?

6.  Antonio Stra­di­vari var hljóð­færa­smiður, einkum róm­aður fyrir ... hvaða hljóð­færi?

7.  Hver skrif­aði bók­ina Þrúgur reið­innar eða Grapes of Wrath?

8.  Íslenskur tón­list­ar­maður sló í gegn fyrir tón­list sem hann flutti og samdi í leik­gerð eftir Þrúgum reið­innar fyrir nokkrum ára­tugum. Hver var sá?

9.  Manfred Albrecht Freiherr von Richthofen varð frægur á árum fyrri heims­styrj­aldar. Hann var ... hvað?

10.  Lyfin Ozempic og Saxenda hafa kom­ist í sviðs­ljósið að und­an­förnu. Í dag­legu tali eru þau kölluð ... hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er teikni­mynda­per­sónan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Í Róma­veldi. 

2.  Melónu.

3.  Mekka.

4.  Albaníu.

5.  Óhóflega ástundan kyn­lífs.

6.  Fiðlur.

7.  John Steinbeck.

8.  KK.

9.  Flug­kappi.

10.  Megr­un­ar­lyf. Í reynd mun þó mjög vill­andi að nota það orð um lyfin.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Margrét Erla Maack.

Á neðri mynd­inni er Pocahontas.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár