1037. spurningaþraut: Matvara kennd við þjóð, hver er hún?

1037. spurningaþraut: Matvara kennd við þjóð, hver er hún?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir fót­bolta­konan knáa í KR-bún­ingnum?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þann 31. ágúst 1997 lést Emad Fayed í bílslysi ásamt vin­konu sinni og bíl­stjóra þeirra. Bíl­stjór­inn mun hafa keyrt afar ógæti­lega en taldi sig hafa ástæðu til. Í hvaða borg gerð­ist þetta?

2.  Undir hvaða gælu­nafni var Emad Fayed ann­ars þekktur?

3.  Hver skrif­aði hið vin­sæla leik­rit Sjö ævin­týri um skömm sem enn er sýnt í Þjóð­leik­hús­inu?

4.  Hvaða land telur sér til tekna að hafa „fundið upp“ smør­rebrød?

5.  Vinsæl mat­vara er á Íslandi nefnd eftir öðru Evr­ópu­landi (ögn sunnar) eða öllu heldur lýs­ing­ar­orði sem dregið er af þjóð­inni sem þar býr. Matvara þessi hefur á seinni árum orðið nokkuð umdeild því vafi þykir leika á um hve holl hún sé og því kjósa margir svip­aðar en gróf­ari teg­undir. Hvaða mat­vara er þetta?

6.  Ýmsir hafa notað sér nafnið „kraken“, t.d. á fyr­ir­tæki, tölvu­leiki, þung­arokks­hljóm­sveit, teikni­mynda­per­sónur, bíó­myndir og bækur, og það er meira að segja til afbrigði af Covid-19 veirunni sem nefnt er kraken. En hvað var upp­haf­lega kallað kraken? Hér þarf svarið að vera all­ná­kvæmt.

7.  Hún heitir Polina Porizkova, fædd­ist 1965 og þegar hún var þriggja ára flúðu for­eldrar hennar heima­land sitt undan inn­rás og fengu hæli í Svíþjóð. For­eldr­arnir höfðu orðið að skilja hana eftir en eftir mik­inn alþjóð­legan þrýst­ing fékk Porizkova litla að fara til for­eldra sinna í Svíþjóð. Strax á tán­ingsa­dri hófst svo glæstur fer­ill Porizkovu sem ... sem hvað?

8.  En frá hvaða landi flúðu for­eldrar Porizkovu? Hér þarf að gæta nákvæmni!

9.  Þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn tók nýr for­seti við völdum í landi einu og flutti þá inn í for­seta­bú­stað­inn sem heitir Höll dög­un­ar­innar á máli lands­manna. Hvaða ætli það sé?

10.  Í hvaða borg var stál­iðju­verið Azovstal?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Milli hvaða staða er þetta sjáv­ar­sund sem hér sést?

***

Aðal­spurn­inga­svör:

1.  París.

2.  Dodi.

3.  Tyrf­ingur Tyrf­ings­son.

4.  Danmörk.

5.  Fransk­brauð. 

6.  Sæskrímsli. Skrímsli dugar ekki eitt og sér.

7.  Fyr­ir­sæta. Hún hefur reyndar feng­ist við ýmis­legt en lang­fræg­ust er hún sem súper­módel.

8.  Tékkóslóvakíu.

9.  Brasilía. For­seta­bú­stað­ur­inn heitir á portú­gölsku Palácio da Alvorada.

10.  Mariupol.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Olga Færseth.

Torres-sund, sem sjá má á neðri mynd­inni, er á milli Ástralíu og Nýju Gíneu.

Svo sem sjá má hér.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár