1036. spurningaþraut: Hvað gerðist í Stockton og Darlington?

1036. spurningaþraut: Hvað gerðist í Stockton og Darlington?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða sögu segir frá land­inu Nangi­jala?

2.  Hvaða frægu þýsku bræður söfn­uðu og skráðu fjölda af fræg­ustu þjóð­sögum Evrópu?

3.  „Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig á eftir sér / og ekki fæ ég miklu ráðið um það hvert hann fer, / en ég vona bara að hann hugsi svo­lítið hlý­lega til mín / og ...— Og hvað?

4.  Hver er stærsta kirkja á Íslandi?

5.  Í hvaða borg fædd­ist og ólst upp Vladimír Pútin?

6.  Hver var söngv­ari Hins íslenska þursa­flokks?

7.  Hvað heitir sjón­varps­mynda­flokk­ur­inn um Covid-19 á Íslandi sem nú er sýndur í sjón­varpi?

8.  Í hvaða landi er höf­uð­borgin Brat­islava?

9.  Stockton og Dar­l­ington eru tveir litlir bæir á Norður-Englandi og eru um 16 kíló­metrar milli bæj­anna. Árið 1825 átti sér stað þar stór­merki­legur atburður sem aldrei áður hafði gerst í ver­öld­inni — en átti síðan eftir að ger­ast ótelj­andi sinnum um allan heim, nema helst á Íslandi. Hvað gerð­ist? 

10.  Dýra­teg­und ein er talin hafa komið fram fyrir 59 millj­ónum ára. Hún þró­að­ist frá mun eldri teg­und, sem er a.m.k. 200 milljón ára gömul. Saman eru teg­und­irnar kall­aðar Lep­idoptera. Þær teg­undir sem hér er spurt til­heyra und­ir­deild­inni Rhopalocera. Talið er að til séu 17.500 teg­undir þess­arar und­ir­deildar í heim­inum. Þæ kunna þó að vera mun fleiri. Við teljum gjarnan að nokkrar teg­undir Rhopalocera búi á Íslandi, en þær til­heyra í raun eldri teg­und­inni (Lep­idoptera). Dýrin hér á landi eru t.d. ekki nærri eins stór og lit­rík og margar teg­undir alvöru Rhopalocera eru. Hvaða dýr eru Rhopalocera?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Bókin heitir Bróðir minn ljóns­hjarta.

2.  Grimm-bræður.

3.   ... leiði mig á end­anum aftur til þín.

4.  Hall­gríms­kirkja.

5.  Pét­urs­borg.

6.  Egill Ólafsson.

7.  Stormur.

8.  Slóvakía.

9.  Bæirnir voru tengdir með fyrstu almenn­ing­s­járn­braut heims­ins.

10.  Fiðrildi. Öll þau skor­dýr sem við teljum vera fiðr­ildi á Íslandi eru í raun ýmsar teg­undir möl­flugna, Lep­idoptera.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er plánetan Mars.

Sem sé eftir að búið hefur verið til and­rúms­loft á henni, sem hefur í för með sér að þar verður til haf og gróður.

Mars „terrafor­maður“ eins og það er kallað.

Og ástæðan fyrir því að þið áttuð að vita að þetta væri Mars en ekki til dæmis Jörðin fyrir millj­örðum ára er gljúfrið gíf­ur­lega sem mun (ef af verður!) verða ógn­ar­langur fjörður eða jafn­vel stöðu­vatn inni í landi.

Á neðri mynd­inni er Pamela Anderson, leik­kona í helsta bún­ingi sínum í þátta­röð­inni Baywatch.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár