1035. spurningaþraut: Fjórtán hlutlaus ríki

1035. spurningaþraut: Fjórtán hlutlaus ríki

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver á þennan hund?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hafa íþróttaliðin New England Patriots og Pitts­burgh Steelers unnið oftar en önnur íþróttalið?

2.  Hvaða land vann Eurovision-keppn­ina í fyrra?

3.  Ingi­björg H. Bjarna­son sett­ist fyrst kvenna á Alþingi fyrir 100 árum. En hún var braut­ryðj­andi á fleiri sviðum. 1892 hafði hún lokið prófi í til­tek­inni grein, fyrst kvenna, og hóf síðan kennslu í grein­inni í Reykja­vík fyrir börn og ungar stúlkur. Hvað kenndi hún?

4.  Annar braut­ryðj­andi í hópi kvenna var Geir­þrúður Hildur Bernhöft sem lauk fyrst kvenna prófi í til­tek­inni grein árið 1945 þótt hún tæki síðan aldrei við starfi af því tagi sem þessi menntun hennar kall­aði á. Það liðu enn ára­tugir þar til kona tók slíkt djobb að sér. Hvað lærði Geir­þrúður Hildur?

5.  Ólafur Þór Hauksson heitir maður sem gegnir mik­il­vægu starfi í sam­fé­lag­inu þótt ekki láti hann mikið á sér bera per­sónu­lega. Hvað starfar hann?

6.  Sú var tíð að vís­inda­menn ímynd­uðu sér að mann­kynið skipt­ist snyrti­lega í þrjá „kyn­þætti“. Löngu er komið í ljós að allt það fimb­ul­famb var og er þvætt­ingur einn, en við hvað var „hvíti kyn­þátt­ur­inn“ kenndur sam­kvæmt þessum kenn­ingum? — og er orðið reyndar oft notað enn yfir hvítt fólk af evr­ópskum upp­runa.

7.  Wisława Szymborska var ljóð­skáld sem fékk Nóbels­verð­laun í bók­menntum 1996. Hún lést 2012. Hverrar þjóðar var Szymborska?

8.  Guðjón Valdi­mars­son skaust fram í sviðs­ljósið á síð­asta ári í tengslum við ákveðið mál og var víst ekki ánægður með athygl­ina. Hvað fékkst Guðjón við sem vakti athygli á honum?

9.  Aðeins 14 sjálf­stæð ríki voru hlut­laus alla síð­ari heims­styrj­öld­ina. Þar af voru 11 í Evrópu að ein­hverju eða öllu leyti. Nefnið 8 þeirra til að fá stig. Ef þið hafið öll 11 fáiði hlut­leys­is­stig!

10.  Aðeins þrjú sjálf­stæð hlut­laus ríki voru utan Evrópu en þá verður að hafa í huga að stórir heims­hlutar voru í greipum evr­ópskra nýlendu­velda. En hver voru þessi þrjú hlut­lausu ríki? Vit­an­lega dugar að nefna eitt!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá leikkon­una Kirsten Dunst í hlut­verki sínu sem ... hver?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ofur­skál­ina, Superbowl.

2.  Úkraína.

3.  Hún lauk prófi í leik­fimi og kenndi síðan dans og leik­fimi, svo hvort tveggja dans og leik­fimi eru rétt.

4.  Guðfræði.

5.  Hann er hér­aðs­sak­sókn­ari.

6.  Kákasus­fjöll.

7.  Pólsk.

8.  Byssu­sölu.

9.  Hlut­lausu Evr­ópu­ríkin voru Svíþjóð, Írland, Spánn, Portúgal, Sviss, Tyrkland, Andorra, Monaco, Liechtenstein, San Marino og Vatíkanið.

10.  Sádi Arabía, Jemen og Afganistan.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Andrés Önd og frændur hans þrír eiga hund­inn þó hann birt­ist ekki í hverri sögu um þá.

Kirsten Dunst var að leika Marie Antoinette Frakka­drottn­ingu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár