1034. spurningaþraut: Fortnite, rita og Hordeum vulgare, þetta vitiði

1034. spurningaþraut: Fortnite, rita og Hordeum vulgare, þetta vitiði

Fyrri auka­spurn­ing:

Fáni hvaða ríkis blaktir hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét James Bond-myndin sem frum­sýnd var á síð­asta ári?

2.  Hvaða stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur skamm­stöf­un­ina UNICEF?

3.  Hordeum vulgare er lat­neska nafnið á jurt einni sem var ein af þeim fyrstu sem menn fóru að rækta þegar þeir náðu valdi á land­bún­aði fyrir 10.000 árum eða svo. Jurtin vex yfir­leitt vel á tempruðum svæðum. Um það bil 70 pró­sent af fram­leiðsl­unni nú er notuð í dýra­fóður en afgang­ur­inn fer til mann­eldis, í brauð, súpur, ýmsa drykki og grauta, og margt fleira. Hvaða jurt er Hordeum vulgare?

4.  Hvers konar fugl er rita?

5.  Hvaða körfu­bolta­karl setti nýlega met í stiga­skorun vestur í hinum víð­lendu Banda­ríkjum?

6.  Hver er kvaðratrótin af 81?

7.  Leik­konan Nína Dögg Fil­ipp­us­dóttir skýrði frá því á dög­unum að hún væri að und­ir­búa sig fyrir nýtt hlut­verk í sjón­varps­þátta­seríu. Hvað á Nína Dögg að leika?

8.  Hvaða skóli á Íslandi hefur skamm­stöf­un­ina LHÍ?

9.  Hvað er Fortnite sem kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið 2017?

10.  Hver er nýráðin sem sam­skipta­stjóri Lands­virkj­unar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heita ungu menn­irnir tveir sem þarna sjást? Hafa verður nöfn þeirra beggja rétt!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  No Time to Die.

2.  Barna­hjálpin.

3.  Bygg.

4.  Máfur.

5.  LeBron James. 

6.  Níu.

7.  Vigdísi Finn­boga­dóttur.

8.  Lista­há­skóli Íslands.

9.  Tölvu­leikur.

10.  Þóra Arn­órs­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er fáni Japans.

Á neðri mynd­inni eru þeir Brian Jones og Keith Richards, félagar í hljóm­sveit­inni The Rolling Stones.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár