1033. spurningaþraut: Vaka, va'a, waka eða wa'a?

1033. spurningaþraut: Vaka, va'a, waka eða wa'a?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða dýr prýðir mynd­ina hér að ofan? 

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað áttu Elsa Lund, Þórður hús­vörður, Dengsi, Eiríkur Fjalar, Skúli raf­virki og Saxi læknir sam­eig­in­legt?

2.  Í hvaða landi var Desmond Tutu biskup?

3.  Hvaða þjóð eða þjóð­ar­hópur sigldi um höfin á bátum sem kall­aðir voru vaka, va'a, waka eða wa'a?

4.  Hvað eiga þeir Randolph Peter Best og Stuart Ferg­usson Victor Sutcliffe helst sam­eig­in­legt hvað snertir vinnu eða ævi­feril?

5.  Hvaða pláneta kemur næst Jörðinni okkar hvað fjar­lægð snertir?

6.  Vil­helm­ína Lever „versl­un­ar­borg­ar­inna“ á Akureyri kaus í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum fyrst allra kvenna. Hvaða ár var það? 1773 — 1803 — 1833 — 1863 — eða 1893?

7.  Á árunum 1792-1815 mynd­uðu stór­veldi Evrópu sjö banda­lög, hvert á fætur á öðru, og var þeim stefnt sér­stak­lega gegn einu ríki í álf­unni. Hvaða ríki var það?

8.  Hvar leysa Barnaby frænd­urnir erfið glæpa­mál?

9.  „Við tölvu­fræða­deild Mar­yland­há­skóla er starf­rækt viða­mikið stað­ar­net með um eða yfir 100 sam­tengdum tölvum. Burð­ar­netið er ETHERNET, og flestar tölv­urnar nota TCP/IP (Trans­mission control protocol/- inter­net protocol) sam­skipta­reglur.“ Þessi texti birt­ist a sínum tíma í tíma­rit­inu Tölvumál og er, eftir því næst verður kom­ist á Tímarit.is, fyrsta dæmið um orðið „inter­net“ í íslensku blaði, þá í merk­ing­unni sam­skipta­net milli tölva. En hvaða ár var þetta þegar inter­net birt­ist í fyrsta sinn í íslensku blaði?  Var það 1972 — 1976 — 1988 eða 1993? (Þessi spurn­ing birt­ist með fyr­ir­vara um að leit­ar­vél Tímarit.is er ekki alveg óskeikul.)

10.  Við hvaða fjörð stendur bær­inn Ögur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar er myndin hér að neðan tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Laddi skap­aði þau öll.

2.  Suður-Afríku.

3.  Pólý­nesar.

4.  Báðir voru í Bítlunum á allra fyrstu árunum sem hljóm­sveitin starf­aði.

5.  Venus.

6.  1863.

7.  Frakk­landi.

8.  Í hinu upp­diktaða hér­aði Midsomer.

9.  1988.

10.  Ísa­fjarð­ar­djúp.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er loris.

Neðri myndin er frá Vík í Mýrdal.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár