1032. spurningaþraut: NKVD, anaconda, Mozart, geitnyt og frænka

1032. spurningaþraut: NKVD, anaconda, Mozart, geitnyt og frænka

Auka­spurn­ingin fyrri:

Hvað heita sjón­varps­þætt­irnir þar sem þessi víga­lega per­sóna kemur við sögu?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kona ein er aðsóps­mikil og jafn­vel ill­skeytt. Allir kalla hana frænku en í raun­inni er hún bara frænka ... hvers eða hverrar eða hverra?

2.  Hvers konar dýr er anaconda?

3.  Mann­skæðastasti jarð­skjálfti á seinni tímum varð í júlí árið 1976.  Staðfest er að 242.000 létu lífið en senni­lega dóu miklu fleiri, jafn­vel allt að 655.000. Í hvaða landi varð þessi skelfi­legi skjálfti?

4.  Í hvaða borg fædd­ist Wolfgang Amadeus Mozart?

5.  Hvaða rit­höf­undur skrif­aði fyr­ir­lestra/bók með nafn­inu Sér­her­bergi eða A Room of One's Own?

6.  Og hverja skorti sér­her­bergi að mati höf­und­ar­ins?

7.  Á þessu ári mun vera von á nýrri mynd um forn­leifa­fræð­ing­inn knáa, Indiana Jones. Hversu margar verða bíó­mynd­irnar um hann þá orðnar?

8.  Að hverju leitar SETI?

9.  Hvers konar fyr­ir­brigði er geir­nyt?

10.  Í hvaða ríki starf­aði stofnun sem kölluð er NKVD á árunum 1934-1946?

***

Auka­spurn­ingin seinni:

Hver er hér nokkuð ungur að árum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Soffía er frænka Kamillu litlu.

2.  Slanga.

3.  Kína.

4.  Salzburg.

5.  Virginia Woolf.

6.  Konur.

7.  Fimm.

8.  Lífi í geimnum.

9.  Fisk­teg­und.

10.  Sov­ét­ríkj­unum. „Rúss­landi“ er vita­skuld ekki full­nægj­andi svar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er aðal­per­sónan í sjón­varps­s­er­í­unum Happy Valley.

Á neðri mynd­inni er Stalín ungur árum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár