Samfylkingin stærsti flokkurinn hjá Gallup í fyrsta sinn síðan 2009

Grænu flokk­arnir í rík­is­stjórn hafa tapað miklu fylgi það sem af er kjör­tíma­bili og hafa ekki mælst minni síðan það hófst. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í námunda við kjör­fylgi sitt en mælist ekki lengur stærsti flokkur lands­ins. Rík­is­stjórnin mælist kol­fallin.

Samfylkingin stærsti flokkurinn hjá Gallup í fyrsta sinn síðan 2009
Formaður Frá því að Kristrún Frosta­dóttir tók við for­mennsku í Sam­fylk­ing­unni í fyrra­haust hefur fylgi flokks­ins vaxið hratt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Sam­fylk­ingin mælist með 25,3 pró­sent fylgi í nýj­ustu könnun Gallup og þar með stærsti flokkur lands­ins. Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar hefur ekki mælst meira síðan í nóv­em­ber 2009, eða í rúm­lega 13 ár. Þá sat flokk­ur­inn í rík­is­stjórn með Vinstri grænum og Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, þáver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, var for­sæt­is­ráð­herra. Þetta er auk þess í fyrsta sinn síðan í maí 2009 sem flokk­ur­inn mælist stærstur allra stjórn­mála­flokka á land­inu. 

Fylgi flokks­ins hefur farið hratt upp á við eftir að Kristrún Frosta­dóttir til­kynnti um for­manns­fram­boð í Sam­fylk­ing­unni í ágúst 2022, en hún var kjörin for­maður flokks­ins í októ­ber. Alls mælist Sam­fylk­ingin nú með 15,4 pró­sentu­stigum meira fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist oft­ast stærsti flokkur lands­ins. Síðast þegar hann missti þá stöðu var í aðdrag­anda haust­kosn­ing­anna 2017, þegar Vinstri græn skriðu fyrir ofan hann. Þá var mun­ur­inn þó innan skekkju­marka. Svo er ekki nú. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 23,5 pró­sent fylgi, eða 1,8 pró­sentu­stigi minna en Sam­fylk­ingin. Það er auk þess 0,9 pró­sentu­stigum minna fylgi en flokkur Bjarna Bene­dikts­sonar fékk í síð­ustu kosn­ingum. 

Vinstri græn og Framsókn í vanda

Í sam­an­burði við hina flokk­anna sem mynda rík­is­stjórn má Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þó vel við una. Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, mælist annan mán­uð­inn í röð með 6,8 pró­sent fylgi. Það er minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum Gallup, en þær ná aftur til 2004. Vinstri græn hafa tapað 5,8 pró­sentu­stigum frá haustinu 2021. Einungis einn flokkur á þingi hefur tapað meiru fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og Vinstri græn mæl­ast nú sjötti stærsti flokk­ur­inn á þing­i. 

Sá flokkur er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Hann hefur alls tapað sex pró­sentu­stigum frá því að kosið var síð­ast og mælist nú með 11,3 pró­sent fylgi. Það er minnsta fylgi sem flokkur Sig­urðar Inga Jóhanns­sonar hefur mælst með á yfir­stand­andi kjör­tíma­bil­i. 

Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir tapað 12,7 pró­sentu­stigum sam­kvæmt Gallup. Það þýðir að Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig 2,7 pró­sentu­stigi meira af fylgi en flokk­arnir þrír sem sitja að völdum hafa tap­að. 

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er 41,6 pró­sent sem þýðir að hún myndi ekki ná meiri­hluta á þingi og myndi því falla ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Gallup. 

Viðreisn og Flokkur fólksins undir kjörfylgi

Þrír aðrir flokkar utan Sam­fylk­ing­ar­innar hafa bætt við sig fylgi á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili. Píratar mæl­ast með 10,4 pró­sent, Sós­í­alista­flokkur Íslands með 4,4 pró­sent og Mið­flokk­ur­inn með 5,5 pró­sent, sem er þó ein­ungis 0,1 pró­sentu­stigum yfir kjör­fylgi hans. 

Fylgi Við­reisnar mælist 7,3 pró­sent, eða einu pró­sentu­stigi undir kjör­fylgi, og Flokkur fólks­ins mælist með 5,5 pró­sent, sem er 3,3 pró­sentu­stigum minna en flokk­ur­inn fékk í sept­em­ber 2021. 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar milli mán­aða og mælist nú um 46 pró­sent. 

Könnunin fór fram á net­inu 6. til 31. jan­úar. Heild­ar­úr­tak var 9.842 og 48,5 pró­sent tóku þátt. Vikmörk við fylgi flokka eru +/- 1,4 pró­sent. 16,5 pró­sent tóku ekki afstöðu eða vildu ekki svara og 9,3% sögð­ust myndu skila auðu eða ekki kjósa. 74,2 pró­sent nefndu flokk. Ein­stak­lingar í úrtaki voru handa­hófs­valdir úr við­horfa­hópi Gallup.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár