1016. spurningaþraut: Hver birtist hér fyrst?

1016. spurningaþraut: Hver birtist hér fyrst?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér fyrir miðju má sjá þegar teikni­mynda­per­sóna ein birt­ist í fyrsta sinn. Hvað nefn­ist per­sónan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á dög­unum lést fata­hönn­uð­ur­inn Vivienne Westwood, rúm­lega átt­ræð. Nafn hennar hefur alltaf verið og verður eflaust alltaf tengt upp­gangi hljóm­sveitar einnar fyrir tæpri hálfri öld. Hvað hét hljóm­sveitin?

2.  Og hver var for­söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar?

3.  Hver orti: „Nú andar suðrið sæla vindum þýðum ...“

4.  Hvað er efsta deildin í þýskum fót­bolta karla jafnan kölluð?

5.  Hvaða jurt ótt­ast blóðsugur að sögn?

6.  En hvaða málmur er þeim skeinu­hættur?

7.  Hvaða nátt­úru­ham­farir koma við sögu í kvik­mynd­inni Villi­bráð?

8.  Til hvaða heims­álfu telst ríkið Súrínam?

9.  Í byrjun jan­úar drápu lög­reglu­menn í til­tek­inni borg í Banda­ríkj­unum karl að nafni Tyre Nichols. Í hvaða borg gerð­ist þetta?

10.  Og í hvaða ríki Banda­ríkj­anna er borgin?

***

Auka­spurn­ing, sú seinni:

Brúin hér að neðan (2,2 kíló­metra löng) liggur yfir árósa og tengir saman höf­uð­borg í Evr­ópu­landi einu og nágrannabæ einn. Hver er höf­uð­borgin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sex Pistols.

2.  Johnny Rotten eða John Lydon, hvort tveggja er rétt.

3.  Jónas Hall­gríms­son.

4.  Bundesliga. Kórrétt svar væri 1. Bundesliga, en Bundesliga dugar eitt og sér. Kvenna­deildin er kölluð Frauen-Bundesliga.

5.  Hvít­laukur.

6.  Silfur.

7.  Eldgos.

8.  Suður-Ameríku.

9.  Memphis.

10.  Tennessee.

***

Auka­spurn­ingar, svörin við þeim:

Á efri mynd­inni er Guffi, Goofy, eitt af sköp­un­ar­verkum fyr­ir­tækis Walt Disney. Kallaður Fedtmule í þeim dönsku Andrés-blöðum sem hér voru lengi vin­sæl.

Á neðri mynd­inni sést brú í Lissabon.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Ég gískaði "Stóri Úlfur" - á erfitt að trúa að þetta sé Guffi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár