1017. spurningaþraut: „Gutti aldrei gegnir þessu ...“ ormurinn!

1017. spurningaþraut: „Gutti aldrei gegnir þessu ...“ ormurinn!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir full­orðna leik­konan á mynd­inni?

Og svo er bíó­stig fyrir að átta sig á í hvaða mynd hún er að leika þarna.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kýrin Búkolla galdr­aði þrennt með hárum úr hala sínum. Hvaða þrennt? Hér þarf að nefna tvennt til að fá stig.

2.  Hversu margar voru skess­urnar sem eltu Búkollu og bónda­son?

3.  Hvað er stærsta húsið á Íslandi sem er með kúpt þak?

4.  Hvaða hljóm­sveit sendi frá sér plöt­una Dark Side of the Moon fyrir 50 árum?

5.  Þann 27. jan­úar 1945 var 322. riffla­her­deild Rauða hers­ins á ferð um Pólland og lagði þá undir sig smábæ einn. Þetta hefði vart verið talið til tíð­inda í hinu stóra sam­hengi sögu heims­styrj­ald­ar­innar síð­ari, nema vegna þess að smá­bær­inn hét ... hvað?

6.  Lesotho og Eswatini eru lítil Afr­íku­ríki sem eru bæði nær land­lukt í öðru ríki stærra. Hvaða ríki er það?

7.  Eswatini á reyndar líka stutt landa­mæri að enn öðru ríki. Hvaða ríki er það? Þess má geta að Bob Dylan hefur samið all­vin­sælt lag um þetta ríki.

8.  Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir var ráð­herra 2003-2009. Hvaða ráð­herra­emb­ætti gegndi hún þá?

9.  Hann var skóla­stjóri á Akranesi en var kos­inn á þing 2007. Þremur árum seinna varð hann ráð­herra í rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og gegndi ráð­herra­störfum til 2013. Tveimur árum síðar lést hann, 65 ára að aldri. Hvað hét hann? 

10.  „Gutti aldrei gegnir þessu ...“ heldur hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Til vinstri er Angela Merkel á spjalli við evr­ópskan stjórn­mála­mann 2011. Hvað heitir konan til hægri?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Vatn, eld og fjall.

2.  Tvær.

3.  Laug­ar­dals­höllin.

4.  Pink Floyd.

5.  Auschwitz.

6.  Suður-Afríka.

7.  Mósambik.

8.  Mennta­mála­ráð­herra.

9   Guð­bjartur Hann­es­son.

10.  „... grettir sig og bara hlær.“

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Meryl Streep. Bíó­myndin var Sophie's Choice frá 1982.

Á neðri mynd­inni er Merkel ásamt Yuliu Timos­henko frá Úkraínu.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár