1018. spurningaþraut: Hver orti um hina rósfingruðu morgungyðju?

1018. spurningaþraut: Hver orti um hina rósfingruðu morgungyðju?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða ár er þessi ljós­mynd tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kona nokkur gekk ung í hjóna­band, meira að segja tölu­vert of ung myndum við flest­öll telja nú. Hún var svo lík­lega aðeins 19 ára þegar hún missti eig­in­mann­inn, en helg­aði sig upp frá því því hlut­verki að breiða út skoð­anir hans og styrkja þær á alla lund. Hún lifði í sínum ekkju­dómi 44 ár en dó þá. Hún er æ síðan virt vel meðal fylg­is­manna eig­in­manns­ins. Hvað hét hún?

2.  En hvað hét eig­in­mað­ur­inn?

3.  Á Ósk­arsverð­launa­há­tíð­inni eru veitt verð­laun fyrir bestu erlendu mynd­ina. Myndir gerðar í hvaða landi hafa oft­ast unnið þau verð­laun?

4.  Hver skrif­aði um hina „fag­ur­bryn­hos­uðu Akkea“ og „hina rós­fingr­uðu morg­un­gyðju“?

5.  En hver þýddi þetta á íslensku?

6.  Hin kaþ­ólska munka­regla Dom­iník­ana er stundum kennd við ákveðið dýr, það vill segja að munk­arnir eru kall­aðir [dýr]. guðs. Hvaða dýr?

7.  Hversu mörg tón­verk af öllu tagi eru til eftir Ludwig van Beethoven? Eru þau 27 — 72 — 177 — 722 eða 1.272?

8.  Hvar á land­inu er Dynj­and­is­heiði?

9.  Baltasar Kormákur er nú að leggja síð­ustu hönd á kvik­myndun skáld­sögu eftir íslenskan höf­und. Myndin heitir Snerting en hver er höf­und­ur­inn?

10.  Hvaða íslenski leik­ari stofn­aði nýlega fram­leiðslu­fyr­ir­tækið ACT4 ásamt nokkrum öðrum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þarna má sjá leikkon­una Önnu Gunn. En hvað heitir per­sónan sem hún er að leika þarna?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Aísha.

2.  Múhameð spá­maður.

3.  Ítalíu.

4.  Hómer.

5.  Svein­björn Egilsson.

6.  Hundar guðs.

7.  722.

8.  Á Vest­fjörðum.

9.  Ólafur Jóhann.

10.  Ólafur Darri.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin á fyrsta degi Surts­eyj­ar­goss­ins 1963. Myndin er á Hér­aðs­skjala­safni Austur-Húna­vatns­sýslu.

Persónan á neðri mynd­inni er Skyler White úr Breaking Bad.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár