1019. spurningaþraut: Frá íþróttaliði til fjöldamorða

1019. spurningaþraut: Frá íþróttaliði til fjöldamorða

Fyrri auka­spurn­ing, hver er per­sónan sem starir út?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver lék aðal­hlut­verkið í bíó­mynd­inni Sound of Music?

2.  Hvað hét for­sprakki hljóm­sveit­ar­innar Dire Straits?

3.  Trevor Noah heitir karl einn. Hvað fæst hann við í líf­inu?

4.  Hvaða dýr fann fyrst þurrt land úr örk­inni hans Nóa?

5.  Piet Mondrian hét lista­maður einn, fæddur 1872, dáinn 1944. Hver var hans list­grein?

6.  Þjóðskrá birti nýlega tölur um fjölda íslenskra rík­is­borg­ara sem búa í útlöndum. Í hvaða erlendu landi búa flestir Íslend­ingar?

7.  New York Yankees er víð­frægt íþróttalið í sam­nefndri heims­borg. Í hvaða íþrótta­grein keppa Yankees?

8.  Adolf Hitler hafði víst ekki miklar áhyggjur af því að morð Þjóð­verja á Gyðingum myndu vekja hneykslun til lang­frama. Þau myndu gleym­ast fljótt. Og hann mun hafa spurt: „Hver man svosem nú eftir ...“ — ja, til hvaða gleymdu fórn­ar­lamba fjöldamorða var hann að vísa?

9.  Sann­leik­ur­inn er þó sá að Hitler leit­aði þarna langt yfir skammt. Á árunum 1904-1908 stóðu Þjóð­verjar sjálfir fyrir þjóð­ar­morðum á Herero og Nama-þjóð­unum og þau gleymd­ust fljótt í Evrópu. Í hvaða núver­andi ríki bjuggu þær þjóðir?

10.  Hvaða dýra­heiti úrskurð­aði manna­nafna­nefnd á dög­unum að væri ekki nógu virðu­legt til að leyfa mætti það sem manna­nafn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi kona var eitt sinn vin­sælasta film­stjarna heims. Hvað hét hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Julie Andrews.

2.  Knopfler.

3.  Hann er skemmti­kraftur og sjón­varps­maður.

4.  Dúfa.

5.  Mondrian var mál­ari.

6.  Danmörku.

7.  Hafna­bolta, baseball.

8.  Armenum. Hér vís­aði Hitler til þjóð­ar­morðs sem Tyrkir stóðu fyrir gegn Armenum í fyrri heims­styrj­öld.

9.  Namibíu.

10.  Kisa.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Lúsí úr Smá­fólk­inu.

Á neðri mynd­inni er Mary Pickford.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár