1020. spurningaþraut: Tungumál eru viðfangsefnið í þessari þemaþraut

1020. spurningaþraut: Tungumál eru viðfangsefnið í þessari þemaþraut

Hér eru tungu­mál við­fangs­efnið.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér má sjá útlínur land­lukts ríkis sem er nærri tíu sinnum stærra en Ísland. Þar búa ekki nema um 12 millj­ónir manna en þó eru þar 37 opin­ber tungu­mál, fleiri en í nokkru öðru ríki. Hvaða ríki er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í landi einu í Evrópu eru fjögur opin­ber mál, hvorki meira né minna. Eitt þess­ara tungu­mála er þó aðeins talað af rúmu hálfu pró­senti lands­manna og kall­ast rómanska. Hvaða land er þetta?

2.  ¿Í hvaða tungu­máli eru notuð öfug spurn­inga­merki og upp­hrópun­ar­merki í upp­hafi setn­inga (þar sem það á við) en „rétt“ spurn­inga­merki og upp­hrópun­ar­merki í lok setn­inga?

3.  Hvað þykir sér­stak­lega merki­legt við tungu­málið súm­ersku?

4.  Occitanska heitir tungu­mál eitt í Evrópu sem nú er talað af nokkur hund­ruð þús­und manns en var áður nokkuð útbreitt í fáeinum löndum, aðal­lega þó einu. Meg­in­tungan í því landi náði yfir­hönd­inni yfir occitönsku og fór nærri því að útrýma henni þar, en hún skrimtir þó enn. Nokkrar und­ir­deildir þekkj­ast af occitönsku, svo sem limús­ína (já!) og pró­venska. Hvaða tungu­mál var það sem nærri útrýmdi occitönsku? 

5.  Flest tungu­mál í Evrópu telj­ast, eins og við vitum, til indó-evr­ópskra mála. En hver er útbreiddasta tungan í Evrópu sem er EKKI af indó-evr­ópskri rót? Það hjálpar kannski til að nefna að þessi tunga er töluð af um 17 millj­ónum manna.

6.  Úrdú (og mál­lýskur) er móð­ur­mál meira en 70 millj­óna manna og auk þess tala 150-200 millj­ónir málið sem annað tungu­mál. Þetta er indó-evr­ópsk tunga, rétt eins og íslenska, en tungu­málin eiga þó fátt sam­eig­in­legt á yfir­borð­inu. Úrdú er fyrst og fremst talað í tveimur ansi fjöl­mennum nágranna­ríkjum sem eru ... hver? Hér verður að nefna þau bæði.

7.  Aðeins í þremur ríkjum Banda­ríkj­anna eru fleiri en eitt opin­bert mál. Hvaða ríki eru það? Hér dugar að nefna eitt.

8.  Sú var tíð að tungu­málið quechua var að lík­indum eitt af þeim algeng­ustu í heilli heims­álfu. Það var til dæmis meg­in­tunga í einu heil­miklu stór­veldi. Fyrir nokkrum öldum varð quechua hins vegar fyrir miklum hnekki en dó þó ekki út. Það er nú talað af tæp­lega 8 millj­ónum manna, og er meðal opin­berra tungu­mála í þremur ríkjum. Í hvaða heims­álfu er quechua talað?

9.  Hvað er þýska opin­bert tungu­mál í mörgum löndum? Hér má skeika einu til eða frá.

10.  Það kemur lík­lega fáum á óvart að Banda­ríkin eru það land í heim­inum þar sem flestir tala ensku. En í hvaða landi skyldu NÆSTFLESTIR eiga ensku að móð­ur­máli?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvern af þessum fjórum bók­stöfum má finna í gríska staf­róf­inu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sviss.

2.  Í spænsku.

3.  Það er eftir því sem best er vitað fyrsta rit­málið.

4.  Franska

5.  Ung­verska.

6.  Indland og Pakistan.

7.  Havaí, Alaska og Suður-Dakóta (enska og O'ceti Sakowin). Franska er ekki opin­bert mál í Louisana þótt brúka megi það upp að vissu marki í stjórn­sýslu.

8.  Suður-Ameríku.

9.  Þýska er opin­bert tungu­mál í sex ríkjum (Þýska­landi, Aust­ur­ríki, Belgíu, Sviss, Liechtenstein og Lux­em­búrg) svo rétt telst vera 5-7.

10.  Á Indlandi (um 125 millj­ónir).

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Ríkið með öll opin­beru málin er Bólivía.

Gríski bók­staf­ur­inn beta er annar frá hægri. Lengst til hægri er þýski staf­ur­inn Eszett en hinir bók­stafirnir eru úr georgísku (lengst til vinstri) og kyrill­ísku.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár