1021. spurningaþraut: Hvað gerðist í Wieluń?

1021. spurningaþraut: Hvað gerðist í Wieluń?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir leikk­konan á miðri mynd­inni þar sem hún þenur sig i mynd­inni Tár?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í rúman ald­ar­fjórð­ung hafa söng­kon­urnar Emilía Torrini, Hafdís Huld, Urður Hákon­ar­dóttir og nú síð­ast Margrét Rán allar sungið (mis­mikið) með mjög frægri og vin­sælli hljóm­sveit, sem heitir ... hvað?

2.  Í hvaða landi er hér­aðið Asturías?

3.  Bærinn Wieluń í Póllandi kom við sögu í síð­ari heims­styrj­öld­inni. En á hvaða hátt? a) Þar mætt­ust herir Banda­ríkja­manna og Sov­ét­manna í fyrsta sinn 1945.  b) Þar voru næst­stærstu útrým­ing­ar­búðir Þjóð­verja á eftir Auschwitz.  c) Á bæinn var gerð fyrsta loft­árás styrj­ald­ar­innar, aðfar­arnótt 1. sept­em­ber 1939.  d) Þar var Heinrich Himmler yfir­maður SS hand­tek­inn í stríðs­lok 1945.  e) Þaðan sigldi þýska risa­orr­ustu­skipið Bismarck af stað í sína fyrstu og síð­ustu ferð, 18. maí 1941.

4.  Einn höf­undur hefur fengið Íslensku bók­mennta­verð­launin í flokki fræði­rita og bóka almenns eðlis þrisvar sinnum fyrir sagn­fræði­verk sín. Hver er sá höf­undur?

5.  Basil II var keis­ari í vold­ugu ríki í nærri hálfa öld, frá 976 til 1025. Ríkið stóð á mjög gömlum merg en hafði hnignað heil­mikið þegar hann kom til valda. Hann náði að stöðva hnignun þess og herða ríkið til mik­illa muna. Í hvaða ríki var Basil keis­ari?

6.  Basil var sig­ur­sæll her­for­ingi og varð sér­stak­lega frægur fyrir sigra sinna á einni til­tek­inni þjóð. Hann fékk m.a.s. sér­stakt við­ur­nefni þar af, og var kall­aður „Basil XXX-bani“. Hvaða þjóð ban­aði hann af svo miklum dugn­aði?

7.  Hvaða heitir rík­is­sátta­semj­ari?

8.  Sú sem gegnt hafði starfi rík­is­sátta­semj­ara á undan þeim núver­andi var fyrr­ver­andi þing­maður og rektor. Hvað heitir hún?

9.  Marie Curie var einn helsti vís­inda­maður heims um og upp úr alda­mót­unum 1900. Frá hvaða landi kom hún?

10.  Hún fann tvö frum­efni. Nefnið að minnsta kosti annað. Þá fáiði stig. Ef þið hafið bæði, þá fáiði Nóbels­stig!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má skjald­ar­merki til­tek­ins ríkis en það prýðir jafn­framt fána þess. Hvaða ríki er það?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gusgus.

Í til­felli Mar­grétar Ránar er það raunar hljóm­sveit hennar Vök sem treður öll (bæði!) upp með Gusgus. 

2.  Spáni. Asturias er líka til á Fil­ipps­eyjum en þar er um að ræða bæj­ar­fé­lag fremur en hérað.

3.  C) Á bæinn var gerð fyrsta loft­árás styrj­ald­ar­innar, aðfar­arnótt 1. sept­em­ber 1939.

4.  Guðjón Frið­riks­son sagn­fræð­ingur.

5.  Býsans­rík­inu, aust­ur­róm­verska rík­inu.

6.  Hann drap svo mikið af Búlgörum að hann var kall­aður Búlgara­bani.

7.  Aðal­steinn Leifsson.

8.  Bryndís Hlöðvers­dóttir.

9.  Póllandi.

10.  Polonium og rad­íum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Cate Blanchett að leika hljóm­sveit­ar­stjóra í bíó­mynd frá í fyrra.

Á neðri mynd­inni er skjald­ar­merki Mexíkó. Hér má sjá fán­ann:

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár