Áhrif langvarandi togstreitu eru mikil á samfélagið

Fram­kvæmda­leyfi í einu yngsta árgljúfri heims var fellt úr gildi. Aðspurð hvort Hnútu­virkjun í Hverf­is­fljóti sé end­an­lega úr sög­unni, segir Ingi­björg Eiríks­dóttir: „Það er auð­vitað ekk­ert búið fyrr en það er búið.“ Hún er for­maður Eldvatna – sam­taka um nátt­úru­vernd í Skaft­ár­hreppi og hefur ásamt hópi fólks barist gegn virkj­un­inni í vel á annan ára­tug.

Áhrif langvarandi togstreitu eru mikil á samfélagið
Lamb­haga­fossar Með Hnútu­virkjun hefði rennsli á yfir tveggja kíló­metra kafla í Hverf­is­fljóti skerst, m.a. í Lamb­haga­fossum sem njóta verndar sam­kvæmt lögum um nátt­úru­vernd. Mynd: Ingibjörg Eiríksdóttir/Eldvötn - samtök um náttúruvernd í Skaftárhreppi

Skaft­ár­hreppur er „hrein ger­sema­verk­smiðja“ á hinu eld­virka belti Íslands. Þar er nátt­úran „síkvik og í stöðugri mótun,“ segir Ingi­björg Eiríks­dóttir, for­maður Eldvatna – sam­taka um nátt­úru­vernd í Skaft­ár­hreppi.

Og það er einmitt af þeim sökum, vegna þeirra ein­stöku nátt­úru­fyr­ir­brigða sem finn­ast á svæð­inu, sem úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála hefur fellt fram­kvæmda­leyfi Hnútu­virkj­unar í Hverf­is­fljóti, sem reisa átti í einu yngsta árgljúfri heims, úr gildi. Að áliti nefnd­ar­innar hefur ekki verið sýnt fram á brýna nauð­syn þess að raska svæði sem nýtur slíkrar óyggj­andi verndar nátt­úru­vernd­ar­laga.

Flakkað með aflstærð

„Baráttan gegn Hnútu­virkjun hefur verið æði löng og ströng; hefur staðið í vel á annan ára­tug,“ segir Ingi­björg við Heim­ild­ina. Hug­myndin hafi í gegnum tíð­ina tekið breyt­ingum fram og til baka hvað varðar afl­stærð, „en við höfum tuggið á því að eyði­legg­ing nátt­úru­ger­sema er ekki, og verður aldrei, mæld í mega­vöttum“.

Þegar hug­myndin um virkjun í landi Dals­höfða við Hnútu kvikn­aði á …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár