„Við gefum allt sem við getum eins lengi og við getum“

Jacinda Ardern, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, segir að hennar tími sé lið­inn í for­ystu­hlut­verk­inu eftir fjöl­skrúð­ugan og við­burða­ríkan feril. Hún seg­ist ekki stíga til hliðar vegna hræðslu við æ fleiri hót­anir heldur vegna þess að ekki sé lengur „nóg á tank­inum“. Heim­ildin fór yfir helstu áfang­ana á ferli hennar sem for­sæt­is­ráð­herra.

„Við gefum allt sem við getum eins lengi og við getum“
Jacinda Ardern hefur þurft að takast á við ýmsar áskor­anir í starfi sínu sem for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: AFP

Hin fjöru­tíu og tveggja ára gamla Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, hefur tekið þá ákvörðun að stíga til hliðar og gefa ekki kost á sér áfram. Hún mun fara úr emb­ætti eigi síðar en 7. febr­úar næst­kom­andi en starfar sem þing­maður fram að kosn­ingum þar í landi sem verða í októ­ber á þessu ári. 

Ardern hefur vakið mikið fjöl­miðlaum­tal síðan hún tók við sem for­sæt­is­ráð­herra árið 2017. Hún var ein­ungis 37 ára gömul á þeim tíma og því yngsti for­sæt­is­ráð­herra lands­ins í yfir 150 ár. Hún varð jafn­framt yngsta konan til að gegna þessu emb­ætti í heim­inum öllum. Hún vakti meðal ann­ars athygli fyrir að koma með barn sitt, sem hún eign­að­ist átta mán­uðum eftir að hún komst til valda, á fund með Sam­ein­uðu þjóð­unum og að bera blæju eftir hryðju­verka­árás­irnar í Christchurch. Hún er jafn­framt þekkt fyrir að tala „frá hjart­anu“ þegar hún ávarpar þjóð sína. 

Iðulega hefur verið talað um Ardern í sömu andrá og Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra Íslands og Sönnu Marin for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands þar sem þær eru allar ungar stjórn­mála­konur með mikil völd. Katrín sagði í sam­tali við RÚV í dag að að afsögn Ardern hefði komið á óvart. „Mér finnst Jacinda hafa verið mjög flottur for­ystu­maður í stjórn­málum.“

Katrín sagði jafn­framt að Nýja-Sjáland væri með í for­ystu í sam­starfi Íslands, Nýja-Sjálands, Skotlands, Finn­lands og Wales um vel­ferð­ar­kerfi. „Þannig að hún hefur verið með fram­sækna póli­tík sem mér hefur fund­ist flott. Mér finnst sjón­ar­sviptir af henni í þessu hlut­verki og segi það líka að við kven­leið­togar erum ekki það margar, þannig að það munar svo sann­ar­lega um hana á þeim vett­vangi,“ sagði Katrín. 

Forréttindahlutverki fylgir ábyrgð

For­sæt­is­ráð­herr­ann frá­far­andi til­kynnti hvarf sitt úr emb­ætti á fundi í morgun en þar sagði Ardern að hún hefði „ekki lengur nóg á tank­inum“ til að sinna starf­inu. „Það er kom­inn tími,“ greindi hún frá. 

„Ég er að fara vegna þess að með slíku for­rétt­inda­hlut­verki fylgir ábyrgð. Ábyrgðin liggur í því að vita hvenær þú ert rétta mann­eskjan til að leiða og líka hvenær þú ert það ekki. Ég veit hvað þetta starf tekur á. Og ég veit að ég á ekki lengur nóg á tank­inum til að gera það vel. Svo ein­falt er það,“ sagði hún jafn­framt.

Ardern benti á að stjórn­mála­menn væru mann­legir eins og annað fólk. „Við gefum allt sem við getum eins lengi og við getum. Og þá er komið að því. Og fyrir mig er tím­inn kom­inn,“ sagði hún og bætti því við að hún hefði velt því fyrir sér í sum­ar­frí­inu hvort hún hefði orku til að halda áfram í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að svo væri ekki.

Engin framtíðarplön

Fram kemur í umfjöllun The Guardian um frá­hvarf Ardern að hún hefði und­an­farið ár þurft að sitja undir hót­unum um ofbeldi, sér­stak­lega frá sam­sær­is­kenn­inga­smiðum og and­stæð­ingum bólu­setn­inga sem hafa verið reiðir vegna lok­ana vegna COVID-19. Hún sagði hins vegar á fund­inum þar sem hún til­kynnti um brott­hvarf sitt að sú aukna áhætta sem fylgdi starf­inu væri ekki orsök ákvarð­ar­innar að hætta.

„Ég vil ekki koma þeim skila­boðum á fram­færi að mót­lætið sem þú verður fyrir í stjórn­málum sé ástæða þess að fólk hættir. Já, það hefur áhrif. Við erum mann­eskjur þegar allt kemur til alls, en það var ekki ástæða ákvörð­unar minnar,“ sagði hún.

Ardern sagði að hún hefði engin fram­tíð­arplön, önnur en að eyða meiri tíma með fjöl­skyldu sinni en hún þakk­aði maka sínum, Clarke Gayford, og dótt­ur­inni Neve, sem hún ól þegar hún gegndi emb­ætt­inu. Hún greindi frá því að hún og mað­ur­inn hennar myndu loks­ins láta verða af því að gifta sig. 

51 lést í hryðjuverkaárásum í Christchurch

Nokkur mál hafa staðið upp úr á ferli Ardern síðan hún tók við emb­ætti fyrir rúmum fimm árum. Hún leiddi Nýja-Sjáland meðal ann­ars í gegnum COVID-19 heims­far­ald­ur­inn og stór áföll, þar á meðal hryðju­verka­árás­ina í Christchurch og eld­gosið á Hvítu­eyju.

For­sæt­is­ráð­herr­ann þurfti að taka á stóra sínum í mars 2019 en þá bár­ust fréttir af því árás­ar­menn hefðu ráð­ist inn í tvær moskur í borg­inni Christchurch og hafið skot­hríð. 

Hund­ruð voru í mosk­unum þegar árás­irnar voru gerð­ar. Vitni sögðu árás­ar­menn hafa skotið á það sem fyrir þeim var og flúið áður en við­bragðs­að­ilar komu á stað­inn.

Maður á þrí­tugs­aldri var strax hand­tek­inn og ákærður fyrir morð. Ástr­alski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Scott Morri­son, sagði að meintur árás­armaður væri ástr­alskur rík­is­borg­ari og „öfga-hægri hryðju­verka­mað­ur“. Fleiri voru hand­teknir dag­inn eftir árás­irnar. 

Slík hegðun ekki liðin á Nýja-Sjálandi

Allt byrj­aði þetta í Masjid Al Noor mosk­unni í mið­borg­inni klukkan 13:40 að stað­ar­tíma. Þangað réð­ist inn maður vopn­aður byssu og skaut á alla sem fyrir honum urðu. Skömmu síðar var greint frá skotárás í annarri mosku í borg­inni. Lög­reglan greindi frá því á blaða­manna­fundi að nokkrir bílar fullir af sprengjum hafi fund­ist í borg­inni en sprengj­urnar hefðu allar verið aftengd­ar.

Ardern sagði þegar hún ávarp­aði þjóð sína um nótt­ina að ekki væri hægt að lýsa árás­unum öðru­vísi en sem hryðju­verk­um. Hún sagði mörg fórn­ar­lambanna mögu­lega vera inn­flytj­endur í land­inu, jafn­vel flótta­menn. Þeir hefðu valið að gera Nýja-Sjá­land að heima­landi sínu, og að Nýja-Sjá­land væri þeirra heima­land. Árás­ar­menn­irnir sem ákváðu að beita ofbeldi af þessu tagi væru hins vegar ekki Nýsjá­lend­ing­ar. Þannig hegðun væri ekki liðin á Nýja-Sjá­landi. 

For­sæt­is­ráð­herr­ann bar slæðu eftir árás­irnar.

Bannað að selja, kaupa og eiga hálf­sjálf­virka riffla og hríð­skotariffla

Þann 21. mars, sex dögum eftir árás­ina, til­kynnti ­Ardern í sjón­varps­ávarpi að ný og hert vopna­lög­gjöf tæki gildi í Nýja-Sjá­landi nokkrum mán­uðum síðar. Bannað yrði að selja, kaupa og eiga hálf­sjálf­virka riffla og hríð­skotariffla. 

Í ávarpi sínu sagð­i ­Ardern að í kjöl­far hryðju­verks­ins hefði sögu lands­ins verið breytt til fram­búðar og nú yrði byssu­lög­gjöf­inni einnig breytt. 51 lést en árás­armað­ur­inn keypti byss­urnar sínar með lög­legum hætti og þar að auki hafði hann keypt margra skota magasín og fleiri hluti sem gerðu byss­urnar hættu­legri. 

Með lög­gjöf­inni voru öll hálf­sjálf­virk skot­vopn og hríð­skotarifflar bann­að­ar. Auk þess sem allur bún­aður sem er til þess fall­inn að breyta venju­legum rifflum í eitt­hvað í lík­ingu við fyrr­nefndar byssur varð ólög­leg­ur. Í ávarp­inu greindi Ardern einnig frá því að sett hefði verið bráða­birgða­reglu­gerð sem tók gildi um leið og hún flutti ávarp sitt en henni var ætlað að hindra að nokkur gæti fest kaup á slíkum vopnum þar til nýju lögin yrðu sam­þykkt.

Hún sagði að mark­miðið væri að gera Nýja-Sjá­land að örugg­ari stað og hún sagð­ist sann­færð um að þessar aðgerðir nytu stuðn­ings þjóð­ar­inn­ar, líka bænda og fleiri sem nota skot­vopn við störf sín, enda bein­ist lög­gjöfin á engan hátt gegn þeim. Eig­endum slíkra vopna var gef­inn frestur til að skila þeim til stjórn­valda sem greiddu fyrir þau til­tekna upp­hæð.

Ljóst að landa­mæri Nýja-­Sjá­lands yrðu lokuð „í langan tíma“

Athygli vakti á heims­vísu þegar Nýja-Sjáland lok­aði land­inu algjör­lega snemma í COVID-far­aldr­inum. Sú aðferð hefur verið umdeild síðan þá fyrir margar sakir. Kjarninn fjall­aði um málið í maí 2020 en þá var ljóst að landa­mæri Nýja-­Sjá­lands yrðu lokuð „í langan tíma“ þó að aðgerðir þar í landi gegn kór­ónu­veirunni hefðu skilað góðum árangri.

Aðgerðir stjórn­valda á Nýja-­Sjá­landi byggðu á því að bregð­ast „hart og fljótt“ við far­aldr­in­um. Sú aðferða­fræði virt­ist hafa skipt sköpum á þessum tíma í því að ná far­aldr­inum niður og aflétta tak­mörk­unum fyrr en gert var í mörgum öðrum lönd­um. Ardern var­aði þó landa sína við því að sofna á verð­in­um. Áfram yrði að gæta var­kárni. „Haldið stefn­u,“ sagði hún á blaða­manna­fundi á þessum tíma. „Við höfum ekki efni á að eyði­leggja allt okkar góða starf þegar við sjáum fyrir end­ann á ástand­in­u.“

Jacinda Ardern stóð í ströngu í COVID-far­aldr­inum eins og svo margir aðrir þjóð­ar­leið­togar.

Þann 19. mars 2020 var landa­mærum Nýja-­Sjá­lands lok­að. Öllum var bannað að ferð­ast til og frá land­inu nema Nýsjá­lend­ingum sem þurftu að kom­ast heim og heil­brigð­is­starfs­fólki. Þann 23. mars var við­bún­aður færður upp á þriðja stig og öllum fyr­ir­tækjum sem ekki buðu nauð­syn­lega þjón­ustu lok­að. Sam­komu­bann var sett á og fjöl­mörgum við­burðum aflýst eða frestað. Einnig var inn­an­lands­flug fellt nið­ur. Tveimur sól­ar­hringum síðar voru aðgerðir hertar enn frekar og við­bún­aður færður á fjórða stig, neyð­ar­stig. Íbúum var gert að hitta aðeins þá sem þeir bjuggu með. Þær aðgerðir voru í gildi vikum saman. 

Í lok apríl sama árs var við­bún­aður aftur færður niður á þriðja stig og fólki leyft að hitta nána ætt­ingja utan heim­il­is. Inn­an­lands­ferða­lög voru heimil með tak­mörk­unum og mennta­stofn­anir og ákveðin fyr­ir­tæki hófu starf­semi að nýju.

Viðurkenndi að ekki yrði hægt að útrýma veirunni úr samfélaginu

Það var síðan í októ­ber 2021 sem dró til tíð­inda í land­inu en þá við­ur­kenndu stjórn­völd í fyrsta sinn að ljóst væri að ekki yrði hægt að útrýma kór­ónu­veirunni algjör­lega úr sam­fé­lag­inu í kjöl­far þess að delta-af­brigði veirunnar komst inn í veiru­laust landið í lok ágúst sama ár.

Ardern flutti lands­mönnum frétt­irn­ar, eftir að afar stífar sam­komu­tak­mark­anir höfðu verið í gildi í Auckland, stærstu borg lands­ins, í heilar sjö vik­ur. Enn voru að grein­ast smit á hverjum degi og þau orðin fleiri en 1.300 alls frá ágúst­lok­um. Ardern sagði ljóst að þetta langa tíma­bil strangra tak­mark­ana hefði ekki náð smit­fjöld­anum niður í núll, en sagði að það væri í lagi.

„Út­rým­ingin var mik­il­væg af því að við vorum ekki með bólu­efni. Nú höfum við það, svo við getum byrjað að breyta því hvernig við gerum hlut­ina,“ sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann en stór­auk­inn kraftur var settur í bólu­setn­ingu þjóð­ar­innar eftir að þessi nýja bylgja far­ald­urs­ins fór af stað og eru Nýsjá­lend­ingar með mest bólu­settu þjóðum í heimi.

Vill að sín verði minnst sem vingjarnlegrar

Það var þó ekki fyrr en um vorið 2022 sem Nýsjá­lend­ingar opn­uðu landa­mærin fyrir erlendum ferða­mönnum. „Það fyll­ir mig stolti að segja frá því að Nýja-Sjá­land er á þess­um tíma­punkti að verða ör­uggt land fyr­ir ferða­menn,“ sagði Ardern í mars 2022 þegar hún til­kynnti um aflétt­ing­arnar. Áður þurftu þeir að fara í tveggja vikna sótt­kví ef þeir ætl­uðu að koma til lands­ins. 

Vin­sældir Ardern hafa dvínað síð­ustu mán­uði í heima­land­inu þrátt fyrir hylli erlendis. Lík­leg­ast má tengja það við að efna­hagur Nýja-Sjálands fer versn­andi og telja sumir að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi ekki staðið við gefin lof­orð í lofts­lags­málum. Ardern sagð­ist þó á fund­inum í morgun ekki stíga til hliðar vegna dvín­andi vin­sælda – heldur eins og áður segir: „Ég veit hvað þetta starf tekur á. Og ég veit að ég á ekki lengur nóg á tank­inum til að gera það vel. Svo ein­falt er það.“ Hún seg­ist vilja að hennar verði minnst sem ein­hvers sem „alltaf reyndi að vera vin­gjarn­leg“.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár