Alina fær alþjóðlega vernd á Íslandi

Útlend­inga­stofnun hefur sam­þykkt að veita Al­inu Kaliuzhnaya, hvít- rúss­neskri flótta­konu alþjóð­lega vernd á Íslandi en Alina flúði heima­land sitt eftir að hafa verið fang­elsuð og pyntuð fyrir það eitt að mót­mæla stjórn­völdum. Í sam­tali við Stundina seg­ist Alina upp­lifa gleði og létti.

Alina fær alþjóðlega vernd á Íslandi
Hlýtur vernd Alina hefur hlotið alþjóð­lega vernd á Íslandi. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég er svo glöð að upp­lifa öryggi,“ segir Alina Kaliuzhnaya, póli­tísk flótta­kona frá Hvíta-Rúss­landi, sem hefur nú hlotið alþjóð­lega vernd á Íslandi á grund­velli „ástæðu­ríks ótta við ofsóknir í heima­landi sínu,“ eins og segir í ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar.

„Mér er svo létt að þessu ferli, sem hefur tekið meira en ár, sé loks lokið og ég finn til mik­illar gleði. Innst inni von­aði ég að ég fengi vernd en ég gat aldrei verið alveg viss. Mig langar að nýta tæki­færið og þakka öllu umhyggju­sama fólk­inu sem studdi og hjálp­aði mér allan þennan tíma,“ segir Alina. 

Alina sagði nýverið sögu sína af ástand­inu í heima­landi sínu í Stund­inni. Þar sagði hún frá því að hún hefði verið fang­elsuð, pyntuð og eft­ir­lýst sem og frá flótt­anum þaðan og hingað til lands. Hún greindi þar einnig frá ákvörðun Útlend­inga­stofn­unnar …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Theresa Arnadottir skrifaði
    Til hamingju, glod heyra þu fekkst loksins verrnd herna, goda frettir svona af og til, mætti vera fleiri samt godar frettir af svona malum.
    3
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Og þó fyrr hefði verið!
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Sem betur fer þá kemur ein og ein góð frétt.😀
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár