Borguðu 2,6 milljónir fyrir ónýta matsgerð

Kaup­endur að jörð í Mos­fells­dal greiddu mats­manni 2,6 millj­ónir króna fyrir að meta galla á fast­eignum á jörð­inni fyrir dóms­mál. Dómari sagði mats­gerð­ina hins vegar ekki not­hæfa en eftir sátu kaup­endur með kostn­að­inn. Fenginn var annar mats­maður til að leggja mat á sömu galla. Sá rukk­aði fyrst 4 millj­ónir fyrir en krafð­ist svo 1,2 millj­óna króna auka­lega ofan á.

Borguðu 2,6 milljónir fyrir ónýta matsgerð
Segir gall­ana veru­lega Jóhannes segir mikla galla vera á hús­unum á jörð­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mats­maður sem feng­inn var til að meta galla á fast­eignum á jörð í Mos­fells­dal rukk­aði 2,6 millj­ónir króna fyrir, en matið sem hann fram­kvæmdi var dæmt ónot­hæft fyrir hér­aðs­dómi. Krafa kaup­enda í dóms­mál­inu féll því niður en engu að síður þurftu þeir að greiða fyrir matið. Annar mats­maður sem feng­inn var til að gera sömu úttekt gaf út að matið myndi kosta 4 millj­ónir króna en rétt áður en skila átti mat­inu inn til dóm­stóla hækk­aði sú upp­hæð í 5,2 millj­ónir króna.

Stjórn Mats­manna­fé­lags Íslands segir „grát­legt að ekki hafi tek­ist betur til í starfi hans [fyrri mat­manns­ins] en raun ber vitni“. Stjórn félags­ins harmar jafn­framt að „óboð­leg vinnu­brögð mats­manns­ins hafi bitnað svo illi­lega á þér,“ í bréfi til kaup­anda. Hins vegar hafi félagið enga lög­sögu yfir félags­mönnum sínum og geti því ekki beitt sér í mál­inu. Enginn sinni eft­ir­liti með vinnu mats­manna annar sen sá sem óski eftir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár