Aldrei jafn mörg heimilisofbeldismál

Lögreglu bár­ust að með­al­tali sjö til­kynn­ingar á dag um heim­il­is­of­beldi eða ágrein­ing tengdra aðila á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Karlar voru ger­endur í 80 pró­sent til­vika og konur þolendur í 77 pró­sent til­vika þegar um var að ræða ofbeldi milli maka eða fyrr­ver­andi maka.

Aldrei jafn mörg heimilisofbeldismál
Konur þolendur í lang­flestum til­vikum Karlar eru ger­endur og konur þolendur í lang­flestum til­vikum heim­il­is­of­beldis. Mynd: Shutterstock

Lögreglu hefur aldrei borist jafn margar til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi og á fyrstu sex mán­uðum þessa árs, sé horft til sama tíma­bils síð­ustu sjö ára. Alls bár­ust lög­reglu 1.232 til­kynn­ingar um heim­ilsof­beldi eða ágrein­ing tengdra aðila á tíma­bil­inu, að með­al­tali sjö til­kynn­ingar á dag eða 205 til­kynn­ingar á mán­uði.

Aukning í til­kynn­ingum um heim­il­is­of­beldi eða ágrein­ing tengdra aðila nemur 13 pró­sentum sé miðað við sama tíma­bil síð­ustu þrjú ár á undan.  Sé ein­göngu litið til heim­il­is­of­beld­is­mála, og er þar átt við lík­ams­árásir, hót­anir eða eigna­spjöll, bár­ust lög­reglu 592 slíkar til­kynn­ingar á tíma­bil­inu. Það er þremur pró­sentum meira en árið 2021 og tveimur pró­sentum meira en árið 2020. Til­kynn­ingar um ágrein­ing milli tengdra aðila voru 640 tals­ins og hafa þær aldrei verið fleiri.

Í til­kynn­ingu frá rík­is­lög­reglu­stjóra kemur fram að heim­il­is­of­beld­is­mál séu nú orðin meira en helm­ingur lík­ams­meið­inga og mann­dráps­mála sem koma á borð lög­regl­unnar.

Tveir þriðju til­kynn­ing­anna voru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þannig komu 67 pró­sent til­kynn­inga um heim­il­is­of­beldi inn á borð lög­regl­unnar þar en 33 pró­sent á borð lög­reglu­emb­ætta á lands­byggð­inni. Sam­bæri­legar tölur um ágrein­ing milli tengdra aðila voru 64 pró­sent hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og 36 pró­sent slíkra til­kynn­inga bár­ust til lög­reglu­emb­ætta á lands­byggð­inni.

79%
ger­enda í heim­ilsof­beld­is­málum eru karl­menn

Í flestum til­fellum var til­kynnt um heim­il­is­of­beldi af hálfu maka eða fyrr­ver­andi maka, alls í 367 til­fellum. Hið sama á við um ágrein­ing milli tengdra aðila, í lang­flestum til­vikum var um maka eða fyrr­ver­andi maka að ræða, alls í 454 til­vikum. Málum þar sem um ræðir ofbeldi af hálfu fyrr­ver­andi maka fækkar hins vegar um 8,3 pró­sent, sé litið til sama tíma­bils síð­ustu þriggja ára.

Tilkynnt var um 187 til­vik heim­il­is­of­beldis þar sem um fjöl­skyldu­tengsl var að ræða. Í 131 til­viki var um að ræða ofbeldi af hálfu barns í garð for­eldris en í 92 til­vikum um að ræða ofbeldi af hendi for­eldris í garð barns.

Þolendur heim­il­is­of­beld­is­ins voru í allt 511 tals­ins en þeir sem beittu ofbeld­inu voru 486 tals­ins. Í flestum til­fellum voru það konur sem urðu fyrir ofbeld­inu, alls í 68 pró­sent til­fella. Þeir sem ofbeld­inu beittu voru í yfir­gnæf­andi meiri­hluta karl­menn en þeir beittu ofbeldi í tæp­lega 79 pró­sent til­vika. Ef horft er til til­vika þar sem ofbeldið er milli maka eða fyrr­ver­andi maka er töl­fræðin enn meira afger­andi, þeir sem ofbeld­inu beita eru í 80 pró­sentum til­vika karlar en þeir sem fyrir því verða í 77 pró­sent til­vika konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár