913. spurningaþraut: Hver af dýrunum okkar heyra best?

913. spurningaþraut: Hver af dýrunum okkar heyra best?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá mál­verk frá 1951. Hver mál­aði það — vel að merkja ekki Íslend­ingur?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi býr meiri­hluti Zúlú-þjóð­ar­innar?

2.  Í hvaða landi er skakki turn­inn?

3.  Hvað er stærsta húsið sem stendur við Lista­braut á Kringlu­svæð­inu í Reykja­vík?

4.  Hver af nán­ustu hús- eða gælu­dýrum manns­ins hafa bestu heyrn­ina?

5.  Korma er fæðu­teg­und. Hvar ætli hún sé upp­runnin?

6.  Óform­legt sam­komu­lag er um að neð­an­jarð­ar­lest­ar­stöðvar í einni til­tek­inni stór­borg séu glæsi­legri og til­komu­meiri en nokk­urs staðar ann­ars staðar. Hvaða borg er það?

7.  Hvaða dýr lifir fyrst og fremst á bambus?

8.  Hvaða hátíð var á sínum tíma kölluð „þjóð­vega­há­tíðin mikla“ vegna umferð­ar­teppu sem leiddi til þess að flestir sem ætl­uðu á hátíð­ina sátu klukku­tímum saman fastir í bílum sínum?

9.  Aðeins eru um 25 kíló­metrar, og varla það, milli tveggja stærstu og virk­ustu eld­fjalla á Íslandi. Annað hefur gosið oft upp á síðkastið en hitt virð­ist frekar stunda að senda hraun upp á yfir­borðið í nokk­urri fjar­lægð, þótt einnig hafi gosið í því sjálfu — en ekki nýlega þó. Hvað heita þessi eld­fjöll bæði?

10.  Cro-Magnon heitir staður í miðju Frakk­landi, þó sunn­ar­lega. Hvað er eða var öllu heldur kennt við þann stað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Suður-Afríku.

2.  Ítalíu.

3.  Borg­ar­leik­hús­inu.

4.  Kettir.

5.  Á Indlandi — í hinum gamla skiln­ingi orðs­ins sem einnig merkir Bangla Desj og Pakistan.

6.  Moskva.

7.  Panda.

8.  50 ára lýð­veld­is­af­mæli 1994.

9.  Bárð­ar­bunga og Grím­svötn, bæði undir Vatna­jökli.

10.  Stein­ald­ar­menn dugar alveg sem svar, eða frum­menn eða eitt­hvað þvíum­líkt.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Karlinn sem mál­aði mál­verkið hét Jackson Pollock.

Konan er Birgitta Jóns­dóttir.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár