914. spurningaþraut: Hver var úti að keyra í forsetabílnum sínum?

Auka­spurn­ing fyrri:

Hver er karl­inn hér að ofan?!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi var púðrið fundið upp á 9. öld?

2.  Það var ekki fyrr en um öld síðar sem upp­götv­að­ist að nota mátti það í hern­aði. Upp­haf­lega var púður nefni­lega ætlað til ... hvers?

3.  Giacomo Casanova var Ítali, uppi á 18. öld. Hann stærði sig mjög af afrekum sínum á ... hvað sviði?

4.  En hvað ætli nafnið hans þýði — Casanova?

5.  Á hvaða menn­ing­ar­svæði var hjólið fyrst þróað þannig að það nýtt­ist að ráði? Var það í Egifta­landi — Indus­menn­ingu í Indlandi — Kína — Maya­rík­inu í Mið-Ameríku — Súmer í Mesópótamíu?

6.  Við hvaða list­grein fæst Alicia Keyes?

7.  Hvað heitir fim­leika­fé­lagið í Kópavogi sem unnið hefur til fleiri verð­launa erlendis en nokk­urt annað?

8.  Hver skrif­aði skáld­sögu 1952 sem heitir sama nafni?

9.  Í hvaða landi voru rósa­stríðin háð? Gæta þarf nákvæmni.

10.  Eitt virtasta ljóð­skáld lands­ins lést fyrir sex árum, en hún var jafn­framt mik­il­virkur þýð­andi, bæði úr spænsku en ekki síður rúss­nesku. Hvað hét hún?

***

Auka­spurn­ing seinni:

Þetta er for­set­inn í ríki einu að brölta út úr gamla bílnum sínum. Hann hefur nú látið af störfum en var að ýmsu leyti mjög óvenju­legur for­seti. En í hvaða landi sat hann að völdum?

Svo er for­seta­stig í boði fyrir að vita hvað hann heitir.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kína.

2.  Lækninga.

3.  Ásta og kyn­lífs.

4.  Nýtt hús.

5.  Súmer.

6.  Tónlist.

7.  Gerpla.

8.  Halldór Laxness.

9.  Englandi — Bretland er hins vegar ekki rétt.

10.  Ingi­björg Har­alds­dóttir.

***

Svar við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Humphrey Bogart.

Á neðri mynd­inni er Mujica for­seti Úrúgvæ 2010-2015.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár