912. spurningaþraut: Hvern er verið að jarða?

912. spurningaþraut: Hvern er verið að jarða?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá mynd frá útför karls nokk­urs fyrir all­nokkrum ára­tugum. Þið gætuð prófað að klikka á mynd­ina til að sjá betur ótrú­legan mann­fjöld­ann. Spurn­ingin er: Hvern er verið að jarða?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrir hvaða stofnun starf­aði Vladimir Pútin 1975-1990?

2.  Um og upp úr 1970 var í miklum metum hjá sumum rót­tæk­lingum lítil bók sem kölluð var Rauða kverið. Það hafði að geyma til­vitn­anir í stjórn­mála­mann sem þá var upp á sitt áhrifa­mesta. Hver var hann?

3.  Hverjir tóku við her­vernd Íslands árið 1941, eins og það var orðað?

4.  Rétt rúm­lega helm­ing allra beina í manns­lík­ama er að finna í fjórum til­tölu­lega litlum knippum — ef svo má orða það. Hvaða lík­ams­partar eru það?

5.  Upp af hvaða firði, flóa, vík eða vogi gengur Aðal­dalur?

6.  Rothögg í boxi þýðir ekki endi­lega að ein­hver rot­ist, heldur bara svo öfl­ugt högg að annar kepp­andi er þar með úr leik. Hvað nefn­ist sam­svar­andi loka­hnykkur í júdó?

7.  Árið 1997 dó ítalski tísku­kóng­ur­inn Gianni Versace fyrir aldur fram, aðeins fimm­tugur. Hvað henti hann?

8.  Ögmundur Jónasson var um tíma frétta­maður, síðar varð hann þing­maður og ráð­herra um tíma. En hann var líka for­maður í fjöl­mennu stétt­ar­fé­lagi um tíma. Hvaða félag var það?

9.  Ríki eitt sam­anstendur af tveimur þokka­legum eyjum og heitir eftir báðum. Þótt ríkið hafi verið nýlenda Breta frá því um 1800 og þar til það öðl­að­ist sjálf­stæði 1962, þá hafði það í nokkrar aldir þar á undan verið undir stjórn Spánar og höf­uð­borgin í land­inu heitir reyndar ennþá eftir Spáni! Ríkið var fámenn­asta landið sem hafði kom­ist á HM í fót­bolta karla áður en það met var slegið af Íslend­ingum. Hvaða ríki er þetta?

10.  Í hvaða hafi er þetta eyríki ann­ars?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

****

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  KGB.

2.  Maó Zedong.

3.  Banda­ríkja­menn.

4.  Hendur og fætur. (27 bein eru í hvorri hendi, 26 í hvorum fæti, 106 alls, en alls eru beinin 206.)

5.  Skjálf­anda.

6.  Ippon.

7.  Hann var myrtur. 

8.  BSRB.

9.  Trínidad og Tóbago.

10.  Karí­ba­hafi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er verið að jarða Stalín.

Á neðri mynd­inni er Hildur Guðna­dóttir tón­skáld.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár