911. spurningaþraut: Tregasteinn, þagnarmúr og sigurverk

911. spurningaþraut: Tregasteinn, þagnarmúr og sigurverk

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða grun­sam­lega hóp má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Kabúl er höf­uð­borgin í ... hvaða landi?

2.  Hvað er jaðrakan?

3.  Hvað eiga Banda­ríkja­for­set­arnir Abraham Lincoln, James Garfield og William McKinley helst sam­eig­in­legt?

4.  Hvor stað­ur­inn er norðar á heimskringl­unni, Borg­ar­nes eða Nes­kaup­staður?

5.  Hver skrif­aði ann­ars Heimskringlu?

6.  Hver sagði, í laus­legri nútíma­þýð­ingu: „Öll ver­öldin er leik­svið og allir menn og konur eru bara leik­arar. Þau  stíga af svið­inu og inn á það og hvert þeirra leikur á ævi sinni mörg hlut­verk.“

7.  En hver skrif­aði þetta: „Sú var tíð, segir í bókum, að íslenska þjóðin átti aðeins eina sam­eign sem metin varð til fjár. Það var ...“

8.  Hvað heitir sú dóttir Donalds Trumps sem hafði sig mjög í frammi meðan hann var for­seti?

9.  Afkasta­mik­ill rit­höf­undur sendir frá sér bók árlega. Þær þrjár síð­ustu heita Treg­a­steinn, Þagn­ar­múr og Sig­ur­verkið. Hver er höf­und­ur­inn? 

10.  Hver samdi óper­una Aídu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fyr­ir­tæki, sem teygir anga sína um allan heim og smeygir sér víða inn, hefur þetta lógó hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Afganistan.

2.  Fugl.

3.  Þeir voru allir myrtir.

4.  Nes­kaup­staður.

5.  Snorri Sturlu­son.

6.  Shakespe­are.

7.  Halldór Laxness.

8.  Ivanka.

9.  Arnaldur Ind­riða­son.

10.  Verdi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Spaug­stofan.

Á neðri mynd­inni er lógó sam­fé­lags­mið­ils­ins Instagram.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár