903. spurningaþraut: „Dvel ég í draumahöll“

903. spurningaþraut: „Dvel ég í draumahöll“

Fyrri auka­spurn­ing:

Árið 1981 kom þessi plata út á Íslandi. Hvað hét hin tólf ára gamla söng­kona?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða haf­svæði er það sem Frakkar kalla „la Manche“?

2.  Frægur írskur rit­höf­undur var skömmu fyrir alda­mótin 1900 dæmdur fyrir fang­elsi fyrir ósið­semi, það er að segja sam­kyn­hneigð. Hvað hét hann?

3.  Sænski rit­höf­undur Vilhelm Moberg (1898-1973) skrif­aði margt en lang­frægastur er hann fyrir fjög­urra binda verk um sænska fjöl­skyldu í Smá­löndum sem ... gerir hvað?

4.  Bræður þrír ganga undir ólíkum nöfnum í hinum ýmsu löndum. Í Hollandi heita þeir Kwik, Kwek and Kwak en í Þýska­landi Tick, Trick og Track. Hvað köllum við þá?

5.  Eftir hverju heitir banda­ríska ríkið Miss­issippi?

6.  „Dvel ég í drauma­höll / og dag­ana lofa. / Litlar mýs um löndin öll / liggja nú og sofa.“ Hver söng þetta?

7.  Jórunn Viðar lést 98 ára gömul 2017. Hún var lista­maður, nánar til­tekið ... hvað?

8.  Dóttir Jórunnar fædd­ist 1946, varð vel met­inn heim­il­is­læknir og sat í borg­ar­stjórn fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn 1982-1994. Hún sat svo á Alþingi 1999-2003. Síðar sat hún í stjórn­laga­ráði. Hvað heitir hún?

9.  Í hvaða landi er borgin Lublin?

10.  Hvaða Nóbels­verð­launa­höf­undur skrif­aði m.a. bók­ina Töfra­mað­ur­inn frá Lublin?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða heims­álfa er þetta?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Ermar­sund. La Manche þýðir bók­staf­lega „ermi“.

2.  Oscar Wilde.

3.  Flyst til Ameríku.

4.  Ripp, Rapp og Rupp.

5.  Sam­nefndu fljóti.

6.  Lilli klif­ur­mús.

7.  Tónskáld.

8.  Katrín Fjeld­sted.

9.  Póllandi.

10.  Singer.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Katla María.

Á neðri mynd­inni er Afríka — aðeins á ská.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár