902. spurningaþraut: Leyndardómar Snæfellsjökuls, og Ilulissat

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá nokkuð tölvuýktan leik­ara í hlut­verki ofur­hetju einnar í mynd frá 2003. Hvað heitir ofur­hetjan? 

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða fljót rennur um borg­ina Köln í Þýska­landi?

2.  Í hvaða tæp­lega 20 ára stríði áttu Banda­ríkja­menn sem end­aði 1975?

3.  Hinn meinti morð­ingi Jón Hregg­viðs­son var sagður hafa sloppið frá Íslandi með því að kom­ast í skip frá ... hvaða landi?

4.  Bók nokkur eftir Jules Verne heitir í íslenskri þýð­ingu Leynd­ar­dómar Snæ­fells­jök­uls. En hvar ger­ist hún að mestu leyti?

5.  Akvit­anía er hérað í ... hvaða landi?

6.  Á 12. öld var þar fræg her­toga­frú sem varð drottn­ing í tveimur löndum (ekki þó sam­tímis) og varð sjálf móðir tveggja kon­unga. Hún átti um tíma í hörðum deilum við Hinrik seinni eig­in­mann sinn og hann geymdi hana í stofu­fang­elsi árum saman. Hvað hét hún?

7.  En hvað hétu kóng­arnir synir hennar? Nefna þarf að minnsta kosti annan til að fá stig.

8.  Í hvaða landi heitir þriðja fjöl­menn­asta bæj­ar­fé­lagið Ilulissat?

9.  En í hvaða landi er borgin Osaka?

10.  Ratchet og Clank eru hraustir félagar sem má kynn­ast ... hvar?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi kona fékkst við kennslu, blaða­mennsku og sat í bæj­ar­stjórn Reykja­víkur. Hvað hét hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rín.

2.  Víetnam-stríðið.

3.  Hollandi.

4.  Innan í Jörðinni.

5.  Frakk­landi.

6.  Elenóra.

7.  Ríkarður ljóns­hjarta og Jóhann land­lausi.

8.  Græn­landi.

9.  Japan.

10.  Tölvu­leikjum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Hulk.

Á neðri mynd er Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár