894. spurningaþraut: „Ó Reykjavík, ó Reykjavík, þú yndislega borg!“

894. spurningaþraut: „Ó Reykjavík, ó Reykjavík, þú yndislega borg!“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir hin gríð­ar­vin­sæla söng­kona á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Skemmti- og veit­inga­stað­ur­inn Vetr­ar­garð­ur­inn var rek­inn á árunum 1946-1963 innan vébanda stærri skemmti­garðs í Reykja­vík. Hvað nefnd­ist sá skemmti­garður?

2.  Og hvar í Reykja­vík voru þessir staðir?

3.  Hvað heitir sléttan milli Þistil­fjarðar og Öxar­fjarðar?

4.  Og hvað þýðir orðið sem þessi slétta heitir eftir?

5.  Að hvaða þremur ríkjum á Spánn landa­mæri á Pýrene­a­skaga - fyrir utan ákveðið yfir­ráða­svæði Breta?

6.  Í hvaða mjög svo útbreiddu skáld­sögu og sjón­varps­þáttum er fjallað um líf fólks í alræð­is­rík­inu Gilead?

7.  Í hvaða íþrótt var Tiger Woods betri en allir aðrir þegar hann var upp á sitt besta?

8.  Hvaða hljóm­sveit flutti lagið „Ó Reykja­vík, ó Reykja­vík“ í kvik­mynd­inni Rokk í Reykja­vík (og víðar) um og upp úr 1980?

9.  Ovis aries er lat­neskt fræði­heiti á alkunnri dýra­teg­und sem fólk hér á Íslandi þekkir sem ... hvað?

10.  Árið 1929 var tek­inn grunnur húss í Reykja­vík og næstu ár voru útveggir reistir. 1932 hætti hið opin­bera að veita skattfé í bygg­ing­una og þá stöðv­uð­ust fram­kvæmdir til 1941, en þegar þær voru nýhafnar að nýju komu her­náms­yf­ir­völd Breta og tóku húsið í sína þjón­ustu. Það var svo loks tekið í notkun 1950. Hvaða hús er þetta?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Af hvaða teg­und er þessi bíll?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Tívolí.

2.  Í Vatns­mýr­inni.

3.  Mel­rakka­slétta.

4.  Melrakki er refur.

5.  Portúgal, Andorra og Frakk­landi.

6.  Saga þern­unnar, The Handmaid's Tale.

7.  Golfi.

8.  Von­brigði. 

9.  Kindur.

10.  Þjóð­leik­húsið.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Celine Dion.

Á neðri mynd er Saab.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár