893. spurningaþraut: Hér er nú aldeilis margt í mörgu

893. spurningaþraut: Hér er nú aldeilis margt í mörgu

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er það sem bletta­tíg­ur­inn er hér að elta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver eru Eystra­salts­ríkið þrjú og hvernig rað­ast þau á landa­korti frá norðri til suð­urs?

2.  Hvað nefn­ist hljóm­sveitin sem Magnús Eiríks­son hefur haldið úti ára­tugum saman þótt oft starfi hún lítt eða ekki lang­tímum saman?

3.  Og hver hefur gegnum tíð­ina verið aðal­söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar og yfir­leitt unnið mikið með Magnúsi?

4.  Doris Lessing þótti meðal hinna fremri í sinni list­grein á 20. öld. Hvaða list­grein stund­aði Lessing?

5.  En Sigrún Eðvalds­dóttir hér uppi á Íslandi, hver er hennar list?

6.  Guðrún Haf­steins­dóttir er fædd 1970, hún hefur menntun bæði í mann­fræði og hag­nýtri jafn­rétt­is­fræði og var svo fjár­mála­stjóri, fram­kvæmda­stjóri og loks mark­aðs­stjóri í all­stóru fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki. Fyrir ári söðl­aði hún um og tók að sér nýtt starf. Við hvað starfar Guðrún nú?

7.  Hver af þessum þétt­býl­is­stöðum er EKKI á Snæ­fells­nesi? — Brjáns­lækur, Grund­ar­fjörður, Hell­is­sandur, Ólafsvík, Rif, Stykk­is­hólmur.

8.  Hvaða ár er yfir­leitt miðað við að Alþingi hafi verið stofnað til forna?

9.  M1 Abrams nefn­ist stríðstól eitt. Hvers konar tól og hvaða þjóð fram­leiðir það?

10.  Á hvaða eyju er bær­inn Corleone?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá eina fræg­ustu bók­ar­kápu allra tíma. Myndin prýddi Penguin-útgáfu af skáld­sögu sem kom upp­haf­lega út á Englandi 1962 og ára­tug síðar var reyndar gerð fræg bíó­mynd eftir skáld­sög­unni. Hvaða skáld­saga er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eistland er nyrst, þá Lettland og syðst er Litháen.

2.  Manna­korn.

3.  Pálmi Gunn­ars­son.

4.  Rit­höf­undur.

5.  Fiðlu­leik­ari.

6.  Hún er þing­maður.

7.  Brjáns­lækur.

8.  930.

9.  Banda­rískur skrið­dreki.

10.  Sikiley.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Litla dýrið er gasella. Þar eð gasellur telj­ast til anti­lópa, þá fæst líka stig fyrir anti­lópu.

Skjá­skotið sýnir kápuna af skáld­sög­unni Clockwork Orange eftir Anthony Burgess. Eftir sög­unni gerði Kubrick fræga kvik­mynd.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Emil Kristjánsson skrifaði
    Seint myndi Brjánslækur teljast þéttbýlisstaður...
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár