892. spurningaþraut: Í hvaða höfuðborg Evrópu varð mannskæður jarðskjálfti 1977?

892. spurningaþraut: Í hvaða höfuðborg Evrópu varð mannskæður jarðskjálfti 1977?

Fyrri auka­spurn­ing:

Skjá­skotið hér að ofan er úr mynd frá 1993, What's Eating Gilbert Grape? Hver er ungi leik­ar­inn sem þarna sést leika fatl­aðan pilt?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Jóhann Hjart­ar­son er lög­fræð­ingur og hefur komið nokkuð víða við sem slíkur. En Jóhann var fyrr á tíð afreks­maður í til­tek­inni grein og var jafn­vel meðal hinna bestu í heimi um tíma. Hvaða grein var það?

2.  Meðan á þessum afreks­ferli Jóhanns stóð vann hann marga góða sigra en hæst ber sigur hans yfir gam­al­reyndum heims­frægum kappa. Hvað hét sá?

3.  Í hvaða landi er Bret­an­íu­skagi?

4.  Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir hefur verið vara­for­maður í einum stjórn­mála­flokki en for­maður í öðrum. Hvaða flokkar eru þetta?

5.   Petrea Ingileif Guð­munds­dóttir varð um mán­aða­mótin ágúst/sept­em­ber hæst­ráð­andi í stóru fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæki, sem heitir ... hvað?

6.  Í hvaða ríki var Ívan grimmi við stjórn­völ­inn?

7.  Í hvaða skáld­sögu Halldórs Laxness er sagt frá Bjarti í Sum­ar­húsum?

8.  Í frægri senu bók­ar­innar heldur bóndi sér dauða­haldi í dýr eitt á leið­inni yfir á að vetr­ar­lagi og lifir þannig af. Hvaða dýr var það?

9.  Tungl­ferða­á­ætlun Banda­ríkj­anna um 1970 hét Apollo. Ný tungl­ferða­á­ætlun þeirra heitir Artemis. Hvernig tengj­ast þessi tvö nöfn? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

10.  4. mars 1977 reið jarð­skjálfti yfir evr­ópska höf­uð­borg, 7,3 styrk­leika og drap rúm­lega 1.400 manns í borg­inni og 1.578 í land­inu öllu. Margar sögu­frægar bygg­ingar hrundu og rúm­lega 11 þús­und slös­uð­ust. Hvaða borg var hér um að ræða? Var það Búkarest í Rúmeníu — Madrid á Spáni — Róm á Ítalíu — Varsjá í Póllandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi tvö stóru skip liggja í höfn í evr­ópskri höf­uð­borg. Hvaða höf­uð­borg skyldi það vera? Skoðið skipin og giskið svo.f

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Skák.

2.  Kortsnoj.

3.  Frakk­landi.

4.  Vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, for­maður Við­reisnar.

5.  Sýn.

6.  Rúss­landi.

7.  Sjálf­stæðu fólki.

8.  Hreindýr.

9.  Apollo og Artemis eru systk­ini úr grísku goða­fræð­inni. Hér er nauð­syn­legt að orðið „systk­ini“ komi fram.

10.  Búkarest.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Leonardo DiCaprio.

Á neðri mynd­inni má sjá tvo ísbrjóta liggja í höfn­inni í Helsinki. Við enga aðra höf­uð­borg Evr­ópu­ríkis leggur því­líkan ís að þörf sé á svo gríð­ar­miklum ísbrjótum.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár