891. spurningaþraut: Hver fékk starf sem Grigory Romanov sóttist eftir?

891. spurningaþraut: Hver fékk starf sem Grigory Romanov sóttist eftir?

Fyrri auka­spurn­ing:

Um hverja fjall­aði sú sjón­varps­þátta­röð þar sem þessi glað­lega sól birt­ist öðru­hvoru?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Arnold Schwarzenegger var um tíma rík­is­stjóri í ... hvaða ríki Banda­ríkj­anna?

2.  En frá hvaða landi var hann upp­haf­lega?

3.  Morðingi nokkur á að hafa sagt: „Nú eru sól­ar­litlir dagar, bræður“ þótt flennisól­skin væri. Þótti það merki um hve dimmur væri hugur hans. Hvað hét hann?

4.  Í nágrenni við hvaða borg er Ver­sala­höll?

5.  Hvað er suðu­mark vatns við venju­legar aðstæður?

6.  Í mars 1985 var Grigory nokkur Romanov meðal þeirra sem komu til mála í ákaf­lega ábyrgð­ar­mikið starf, en keppi­nautur hans skaut honum ref fyrir rass og fékk starfið. Afleið­ingin varð sú að Romanov féll í gleymsk­unnar dá en keppi­nautur hans fór með him­in­skautum næstu árin. Hvað hét þessi keppi­nautur?

7.  Charles Darwin fór á ofan­verðri 19. öld í sigl­ingu um heim­inn. Hvað hét skipið sem hann sigldi á.

8.  Hvaða kenn­ingu setti Darwin fram í lok sigl­ingar sinnar?

9.  Hver skrif­aði bók­ina Á Skipa­lóni sem hafði að geyma smá­sögur sem voru byggðar á æsku­árum höf­undar á ofan­verðri 19. öld?

10.  Hvað heitir ref­ur­inn í Hálsa­skógi?

***

Auka­spurn­ing sú hin síð­ari:

Þessar tvær leikkonur léku aðal­hlut­verkin í leik­sýn­ingu sem Þjóð­leik­húsið setti upp snemma árs eftir frægri skáld­sagna­röð. Hvað hét sýn­ingin?

Svo er lár­við­ar­stig fyrir að hafa nöfnin á þeim báðum rétt!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kali­forníu.

2.  Aust­ur­ríki.

3.  Axlar-Björn.

4.  París.

5.  100 gráður á Selsíus.

6.  Mikhaíl Gor­batsjev.

7.  Beagle.

8.  Þró­un­ar­kenn­ing­una.

9.  Nonni, Jón Sveins­son.

10.  Mikki.

***

Auka­spurn­inga­svörin!

Sólin á efri mynd­inni er úr þátt­unum um Stubbana eða Tel­etubbies.

Leikkon­urnar Unnur Ösp og Vigdís Hrefna léku í Fram­úr­skar­andi vin­konu.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár