Þetta er gönguleiðin að nýja eldgosinu

Besta göngu­leið til að nálg­ast eld­gosið í Mera­dölum liggur vestan megin hrauns­ins og eftir upp­haf­legu gos­göngu­leið­inni. Gengið er frá bíla­stæði við Suð­ur­strand­ar­veg. Björg­un­ar­sveitin Þorbjörn sendir kort af göngu­leið­inni.

Þetta er gönguleiðin að nýja eldgosinu
Göngu­leið að eld­gosi Við enda göngu­leið­ar­innar þegar komið er niður af Fagra­dals­fjalli. Svæðið á mynd­inni er þó á skil­greindu svæði þar sem hætta þykir á að nýjar gossprungur opn­ist. Mynd: Jeremie RICHARD / AFP

Leiðin til að sjá nýja eld­gosið í Mera­dölum liggur eftir sama slóða og var farin upp­haf­lega að eld­gos­inu í Geld­inga­dölum, eftir svo­kall­aðri leið A frá bíla­stæði við Suð­ur­strand­ar­veg. Þegar gengið er að hraun­inu sem rann í fyrra í dal­verp­inu þar sem fyrsti gíg­ur­inn opn­að­ist er síðan sveigt til norð­urs og svo til aust­urs á Fagra­dals­fjalli allt þar til fólk kemur að Langhóli. 

Björg­un­ar­sveitin Þorbjörn mælir með þess­ari leið í færslu á Facebook, en varar við því að í rangri vind­átt, helst aust­lægri, getur gasmengun lagt yfir leið­ina. Hér er lýs­ing leið­ar­innar frá björg­un­ar­sveit­inni:

„Best er að leggja bílum á bíla­stæðið við göngu­leið A og ganga svo eftir A leið­inni alla leið upp á Fagra­dals­fjall. Þegar komið er upp á fjallið er haldið eftir slétt­unni til norð­aust­urs þar til gosið sést. 

Gangan að nýja hraun­inu og gígnum er að lág­marki 7 km aðra leið og hækk­unin er um 300m. Það þýðir að heildar göngu­ferðin getur verið rúmir 14 kíló­metrar um nokkuð tor­fært svæði og eru mjög brattar brekkur í nágrenni gígs­ins. Gera má ráð fyrir að slík ganga taki 5 til 6 klukku­stundir hið minnsta. Gangan að útsýnis­palli þar sem gíg­ur­inn sést er aðeins styttri eða rétt rúmir 5 km aðra leið.“

Göngu­leiðinBjörg­un­ar­sveitin Þorbjörn mælir með þess­ari göngu­leið að eld­gos­inu í Mera­dölum.

Björg­un­ar­sveitin mun stika leið­ina í kvöld.

Aðrar leiðir eru mögu­legar að gos­inu. Sjá má leiðir á korti Ferða­fé­lags Íslands sem gefið var út í dag. Athuga ber þó, eins og Stundin fjallar um, að nokkrar líkur eru á því að ný gosop geti opn­ast, einna helst á kviku­gang­inum norð­austan við núver­andi gossprungu. Göngu­leiðin sem liggur austan megin fer yfir lík­legan kviku­gang og þar getur opn­ast gos­rás með litlum fyr­ir­vara.

Margir fara einnig eftir Langa­hrygg og horfa á gosið handan hrauns­ins frá því í fyrra.

Veð­ur­stofa Íslands sendi frá sér kort í dag sem sýnir lík­leg­ustu upp­komu­svæði nýrra gossprunga. „Nýj­ar gossprung­ur geta opn­ast í næsta ná­grenni eld­stöðv­anna með litl­um fyr­ir­vara,“ segir í til­kynn­ingu Veð­ur­stof­unnar þar sem er varað við nálægð við hraunjað­ar­inn. „Gló­andi hraun get­ur fallið úr hraunjaðrin­um og hröð og skyndi­leg fram­hlaup orðið þar sem nýj­ar hrauntung­ur brjót­ast fram úr hraunjaðrin­um með mikl­um hraða sem erfitt er að forð­ast á hlaup­um.“

Hvar er hætta á nýjum gosopum?Veð­ur­stofan varar við því að nýjar gossprungur geti opn­ast á svæð­inu sem er lík­lega undir kviku­gang­inum og er merkt með fjólu­bláum lit.
Á göngu­leið­inniHér sést eld­gosið úr fjar­lægð en hægt er að fara vestar og sjá það nær. Hanna-Loore Lemmiksoo, Oliver Lemmiksoo and Margit Lemmiksoo frá Eist­landi sitja hér fyrir á mynd.

Hafa ber í huga að aðstæður á leið­inni geta breyst hratt. Þannig rýkur úr jörð skammt ofan við göngu­leið­ina á Fagra­dals­fjalli og hefur göngu­fólk frá því í gær bent á log­andi mosa. Vef­mynda­vél RÚV frá Langa­hrygg hefur reglu­lega sýnt frá brun­anum þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Eldgos við Fagradalsfjall

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár