Starfinu ekki lokið nema með tillögugerð

Sigrún Júl­í­us­dóttir, sem var í vist­heim­ila­nefnd, seg­ist telja eðli­legt að rann­sókn­inni á Varp­holti og Lauga­landi lyki með til­lögum að aðgerðum. Og að það hefði átt að bjóða konum sem þar voru vistaðar sál­fræði­að­stoð.

Í lögum um vist­heim­ila­nefnd sagði meðal ann­ars um hlut­verk nefnd­ar­innar: „Nefndin skuli leggja grund­völl að til­lögum til stjórn­valda um frek­ari við­brögð ef ástæða þyki til.“ Sigrún Júl­í­us­dóttir, pró­fessor í félags­ráð­gjöf við Háskóla Íslands, var ein nefnd­ar­manna í vist­heim­ila­nefnd og segir hún að aldrei hafi annað komið til greina en að túlka þá klásúlu lag­anna með þeim hætti að nefndin myndi leggja fram til­lögur um hugs­an­legar fébætur, um áfram­hald­andi sál­fræði­þjón­ustu, um mat á fram­kvæmd barna­vernd­ar­laga á þeim tíma sem þá var undir og síðan um áfram­hald­andi vinnu nefnd­ar­innar. Það hafi nefndin enda gert.

Í skip­un­ar­bréfi Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála um rann­sókn á starf­semi Varp­holts og Lauga­lands sagði: „Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar verði eftir atvikum grund­völlur að frek­ari við­brögðum stjórn­valda.“ Orðalag sem er áþekkt en þó ekki eins og orða­lagið í lög­unum um vist­heim­ila­nefnd. Engu að síður var það nið­ur­staða Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar að ekki ætti að gera til­lögur að aðgerðum í loka­skýrslu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laugaland/Varpholt

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár