Ásmundur býður Laugalandsfólki til viðtals

Þeim sem vistaðir voru á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi hefur verið sent boð um að þiggja fund í mennta- og barna­mála­ráðu­neyti Ásmundar Einars Daða­sonar. Tilefnið er að ræða skýrslu um rekstur heim­il­is­ins og þær vænt­ingar sem fólk hefur til aðgerða í fram­hald­inu.

Ásmundur býður Laugalandsfólki til viðtals
Áfram­haldið ræðst af fund­unum Hvernig unnið verður áfram með nið­ur­stöður skýrslu um með­ferð­ar­heim­ilið í Varp­holti og á Lauga­landi mun að veru­legu leiti ráð­ast af því hvað kemur fram á fundum með fyrr­ver­andi vist­mönnum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Öllum þeim sem vistaðir voru á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi býðst að bóka fund hjá mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu. Þar gefst þeim tæki­færi til að ræða nið­ur­stöður skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is­ins. Nið­ur­staða skýrsl­unnar var sú að börn sem vistuð voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hefðu verið beitt and­legu ofbeldi á kerf­is­bund­inn hátt.

Nokkur óvissa hefur ríkt um það hvaða ráðu­neyti myndi taka skýrsl­una til áfram­hald­andi umfjöll­unar þar sem Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála, sem falið var að gera könnun á starf­semi heim­il­is­ins á ára­bil­inu 1997 til 2007, heyrir undir félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti. Barna­vernd­ar­mál heyra hins vegar undir mennta- og barna­mála­ráðu­neyti þar sem Ásmundur Einar Daðason situr á stóli ráð­herra. Ásmundur hafði for­göngu um það á síð­asta ári að starf­semi heim­il­is­ins yrði rann­sökuð þegar hann sat sem félags- og barna­mála­ráð­herra. Er nið­ur­staðan nú sú að hans ráðu­neyti muni taka við fram­haldi máls­ins.

Í gær­morgun sendi Gæða- og eft­ir­lits­stofnun vel­ferð­ar­mála, fyrir hönd ráðu­neyt­is­ins, þeim ein­stak­lingum sem vistaðir voru á með­ferð­ar­heim­il­inu tölvu­póst þar sem þeim var boðið að bóka fund í ráðu­neyt­inu til að ræða nið­ur­stöður skýrsl­unnar og þær aðgerðir sem ráðu­neytið hefði unnið í kjöl­far hennar. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá ráðu­neyt­inu er þó enn ekki vitað til hvaða aðgerða verður gripið í kjöl­far skýrsl­unnar, hvort fólk­inu sem vistað var þar verði boðnar fébætur eða aðrar skaða­bætur til að mynda. Það muni helg­ast af því sem fram komi á umræddum fundum með fólk­inu sem um ræðir, hverjar þeirra áherslur og vilji verði.

Samkvæmt sömu upp­lýs­ingum úr ráðu­neyt­inu mun Ásmundur sjálfur hugs­an­lega funda með ein­hverjum fyrrum vist­barna en fleiri starfs­menn ráðu­neyt­is­ins muni sitja fund­ina.

Í sam­tölum Stund­ar­innar við fjölda kvenna sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hefur komið fram hörð gagn­rýni á það sam­bands­leysi sem þeim hefur þótt ein­kenna málið allt, bæði á meðan á vinnslu skýrsl­unnar stóð en eins eftir að hún var gerð opin­ber fyrir hálfum mán­uði síðan. Þær hafa sagst vera bæði undr­andi og ósáttar með að ekki hafi komið fram skýr svör um hver afdrif skýrsl­unnar eigi að verða, til hvaða aðgerða eigi að grípa til að ofbeldi sem þetta geti ekki end­ur­tekið sig og hvernig eigi að koma til móts við þeirra skaða. Fjöldi þeirra hefur jafn­framt lýst því að þeim þyki lág­marks­krafa að hið opin­bera tryggi þeim fag­lega aðstoð til að vinna úr sál­rænum vanda vegna vist­un­ar­innar á heim­il­inu. Til þessa hafi þeim ekki boð­ist neitt slíkt.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laugaland/Varpholt

Stelpurnar af Laugalandi skila skömminni
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelp­urnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á með­ferð­ar­heim­il­inu í Varp­holti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerf­is­bundnu and­legu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt lík­am­legu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til for­stöðu­hjóna heim­il­is­ins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­vernd­ar­yf­ir­valda sem brugð­ust þeim.
Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfisbundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Lauga­land: Stúlk­urnar voru beittar kerf­is­bundnu og alvar­legu and­legu ofbeldi

Nið­ur­staða skýrslu Gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar vel­ferð­ar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafi verið beittar and­legu ofbeldi. Yfir helm­ingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar lík­am­legu ofbeldi og fjöldi til við­bótar stað­festi að hafa orðið vitni að slíku. Barna­vernd­ar­stofa brást hlut­verki sínu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár