Fimm áhugaverðar myndir frá Cannes-hátíðinni

Af nógu var að taka á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes þar sem frum­sýndar voru myndir frá öllum heims­hornum.

Fimm áhugaverðar myndir frá Cannes-hátíðinni
Crimes of the Future Nýjasta mynd David Cronenberg skartar Viggo Morten­sen, Léa Seydoux og Kristen Stewart í aðal­hlut­verkum. Mynd: Photo Credit: Nikos Nikolopoulos

Holy Spider

Leikstjóri: Ali Abbasi

Holy SpiderBlaða­kona leitar fjöldamorð­ingja sem gengur laus í heil­agri íranskri borg.

Íranski kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Ali Abbasi hefur mikið til starfað á Norð­ur­löndum, en í nýj­ustu mynd sinni beinir hann kast­ljós­inu að heima­land­inu sínu. Holy Spider byggir á sönnum atburðum úr sögu þjóðar sinnar sem hann vill vekja athygli á fyrir heims­byggð­inni. Árið 2001 gekk fjöldamorð­ingi laus í borg­inni Mashhad og myrti konur sem störf­uðu við vændi á götum borg­ar­innar. Í Holy Spider fylgj­umst við með blaða­kon­unni Rahim sem vill kom­ast til botns í mál­inu þrátt fyrir áhuga­leysi lög­regl­unnar og íhalds­sam­ari afla Írans sem líta á „hrein­gern­ingu“ morð­ingj­ans sem þjóð­þrifa­verk.

Abbasi vann Un Certain Regard verð­launin á Cannes-hátíð­inni árið 2018 fyrir mynd sína Border og tekur skrefið nú upp í aðal­keppni hátíð­ar­innar með Holy Spider. Myndin hlaut hins vegar ekki náð fyrir stjórn­völdum í Íran og þurfti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundin á Cannes

MenningStundin á Cannes

„Ég er stoltur af því að hafa tekið þátt í þessu“

Íslenska nátt­úran er mis­kunn­ar­laus, jafn­vel gagn­vart hörð­ustu nöglum, segir Ingvar E. Sig­urðs­son sem leikur styggan úti­vist­ar­mann í nýj­ustu kvik­mynd leik­stjór­ans Hlyns Pálma­sonar, Volaða land. Myndin fjallar um tengsl Dana og Íslend­inga og er frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes þar sem glam­úr­inn ríkir og leik­ar­arnir eru „skraut­hanar“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár