770. spurningaþraut: Hér er spurt um eyjar Kyrrahafsins stóra

770. spurningaþraut: Hér er spurt um eyjar Kyrrahafsins stóra

Í dag snú­ast allar spurn­ing­arnar um eyjar á Kyrra­hafi.

Fyrri auka­spurn­ing er þessi:

Á hvaða eyju er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver af þessum eyjum, eða eyjaklösum, er EKKI í Kyrra­haf­inu: Barbados — Bora Bora — Fiji — Guam — Tahíti?

2.  Hver er ann­ars stærsta eyjan í Kyrra­hafi? Athugið að hér er átt við Kyrra­hafið í víðum skiln­ingi en Ástralía telst þó ekki með.

3.  En hver ætli sé sú næst stærsta?

4.  Á hvaða eyja­klasa í Kyrra­haf­inu má finna fjölda dýra­teg­unda sem hvergi eru til ann­ars staðar, allt frá risa­skjald­bökum til smá­fugla?

5.  Hvaða eyja í Kyrra­haf­inu varð svo fræg fyrir kjarn­orku­til­raunir að nafn eyj­ar­innar var að lokum notað yfir nýja teg­und af klæðis­plaggi?

6.  Í síð­ari heims­styrj­öld­inni var háð fræg sjóorr­usta (þó ein­göngu með flug­vélum) sum­arið 1942, við eyjar nokkurn veg­inn miðja vegu milli Japans og Havaí-eyja. Þar átt­ust við Japanir og Banda­ríkja­menn. Hvað heita þessar eyjar?

7.  Árið 1789 gerðu skip­verjar á bresku skipi að nafni Bounty upp­reisn gegn skip­stjóra sínum. Þeir voru þá nýkomnir frá því að eyða löngum tíma á suð­ur­hafs­eyju sem þeim fannst para­dís lík­ust og vildu ekki snúa heim. Á hvaða eyju höfðu þeir verið? 

8.  Upp­reisn­ar­menn sett­ust svo að á annarri eyju og afkom­endur þeirra búa þar enn. Hvað heitir sú litla og afskekkta eyja?

9.  Tvær mjög stórar (hvor um sig stærri en Ísland) og sam­liggj­andi eyjar í Kyrra­haf­inu fund­ust ekki eða voru numdar af mönnum fyrr en um árið 1200. Þeir eru líka nokkuð afskekktar. Nú er eitt ríki á þessum eyjum báðum. Hvað heitir það?

10.  Í Kyrra­haf­inu er að finna þrjú fámenn­ustu sjálf­stæðu ríki heims (fyrir utan Vatíkanið). Íbúar þeirra eru á bil­inu 10.000-17.000. Þið fáið eitt stig ef þið getið nefnt eitt þeirra, lár­við­ar­stig ef þið getið nefnt tvö en sér­stakt Hōkūleʻa-stig ef þið getið öll þrjú. Röðin þarf ekki að vera rétt. 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða eyja­klasa í Kyrra­haf­inu má sjá hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Barbados er í Karí­ba­hafi.

2.  Nýja Gínea.

3.  Borneó.

4.  Galapa­gos.

5.  Bikini.

6.  Midway.

7.  Tahíti.

8.  Pitcairn.

9.  Nýja Sjáland.

10.  Fámenn­ast er Tuvalu (10.000 íbúar), þá kemur Nauru (11.000) og síðan Palau (17.000).

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyrri myndin er tekin á Páska­eyju eða Rapa Nui.

Seinni myndin sýnir Havaí-eyjar úr mik­illi hæð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár