713. spurningaþraut: Hér er spurt um veislu í farangrinum, náttúrlega

713. spurningaþraut: Hér er spurt um veislu í farangrinum, náttúrlega

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi íslenska hljóm­sveit?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Og þá í fram­haldi af því, hvað heitir söng­konan?

2.  Bassa­leik­ari hljóm­sveit­ar­innar (lengst til vinstri) spilar á trommur í annarri kunnri hljóm­sveit, eða gerði að minnsta kosti til skamms tíma. Hvaða hljóm­sveit er það?

3.  Veisla í far­angrinum er æviminn­inga­bók sem út kom árið 1964. Hver skrif­aði bók­ina?

4.  Bókin segir að mestu frá atburðum í einni til­tek­inni borg sem kölluð er veisla í far­angrinum“. Og sú borg er ... hver?

5.  Íslensk söng­kona fékk um dag­inn Grammy-verð­laun. Hvað heitir hún?

6.  Verkið sem hún söng í fjallar um ... ja, hvað eða hvern?

7.  Um það bil árið 1160 fædd­ist drengur sem fékk nafnið Temüjin og varð upp úr fer­tugu leið­togi þjóð­ar­innar og síðan einn sig­ur­sæl­asti her­stjóri sög­unnar. Hann er þekktur undir öðru nafni en Temüjin. Hvað er það?

8.  Árið 1492 gerð­ist margt en einn atburður það ár skyggir þó á alla aðra vegna þess hve örlaga­ríkur hann reynd­ist. Hvaða atburður var það?

9.  Lengsti fjörður í heimi er ekki all­fjarri Íslandi. Hann er 350 kíló­metra langur frá mynni inn í botn. Hvað skyldi hann heita?

10.  Hvað var Winston Churchill sagður hafa kallað þung­lyndisköst sín?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða unga snót er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Margrét Rán.

2.  Hatari. Hér er um að ræða Einar Stef­áns­son.

3.  Hemingway.

4.  París.

5.  Dísella Lár­us­dóttir. Dísella dugar í þetta sinn. 

6.  Egifskan faraó. Hann hét Akhnaten en faraó dugar.

7,  Genghis Khan.

8.  Kólumbus lenti með menn sína í Ameríku.

9.  Scoresby-sund á Græn­landi.

10.  Svarta hund­inn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er hljóm­sveitin Vök.

Á neðri mynd­inni er Viktoría Breta­drottn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár