714. spurningaþraut: John Wayne og Bjarni Benediktsson

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Bern?

2.  Hvar fór sú hátíð­lega athöfn fram þegar Ísland var lýst lýð­veldi?

3.  Banda­ríski kvik­mynda­leik­ar­inn John Wayne var kunn­astur fyrir að leika í til­tek­inni teg­und kvik­mynda. Hvernig myndir voru það?

4.  En hvaða banda­ríski kvik­mynda­leik­ari hafn­aði Ósk­arsverð­launum sem hann vann 1973 og sendi leikkonu af ættum amer­ískra frum­byggja til að fara með yfir­lýs­ingu fyrir sig af því til­efni?

5.  En fyrir leik í hvaða bíó­mynd hafði þessi við­kom­andi leik­ari unnið verð­launin?

6.  Hvað heitir nú fullu nafni ráðu­neyti það sem Bjarni Bene­dikts­son gegnir?

7.  Hversu margir þing­menn sitja á Alþingi?

8.  Í hvaða borg er Buckingham-höll?

9.  Krikkett er vin­sælasta íþróttin í fjöl­mennu landi og ýmsir sögu­frægir afreks­menn í íþrótt­inni hafa komið þar fram, svo sem Sachin Tendulkar og Sunil Gavaskar. Hvaða land er þetta?

10.  Tinna Hrafns­dóttir leik­stjóri frum­sýndi á dög­unum kvik­mynd sem fengið hefur dóma góða. Hvað heitir myndin?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir fígúran hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sviss.

2.  Á Þing­völlum.

3.  Kúreka­myndir.

4.  Marlon Brando.

5.  Hann lék Guð­föð­ur­inn í sam­nefndri bíó­mynd.

6.  Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið.

7.  63.

8.  London.

9.  Indland.

10.  Skjálfti.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Agatha Christie.

Á neðri mynd­inni er Lilli klif­ur­mús.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár