712. spurningaþraut: Af hverju leggjast fyrrverandi og núverandi stórveldi gegn hjónabandi?

712. spurningaþraut: Af hverju leggjast fyrrverandi og núverandi stórveldi gegn hjónabandi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hverju er lýst hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar er Sjallinn?

2.  Fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eflingar hefur staðið í ströngu síðan hann sagði af sér í vetr­ar­byrjun. Hvað heitir sá umdeildi karl?

3.  Fyrir tveim vikum gekk Stella Moris í hjóna­band með unnusta sínum. Það gekk nú aldeilis ekki átaka­laust fyrir sig því bæði eitt núver­andi og annað fyrr­ver­andi stór­veldi hafa bæði lagt sig öll fram um að leggja stein í götu Moris og unnusta hennar, en þó náðu þau að lokum að gifta sig. Hins vegar er ljóst að það mun líða á löngu þangað til þau geta lifað ein­hverju í lík­ingu við eðli­legt hjóna­líf. Þau hafa þó sér til hugg­unar öfl­uga sveit stuðn­ings­manna sem berst fyrir mál­stað þeirra. Hvað heitir hinn nýi eig­in­maður Stellu Moris?

4.  Í einni af skáld­sögum Halldórs Laxness kemur fyrir kona sem er mjög gefin fyrir að baka stórar miklar tertur, löðr­andi í sykri og rjóma og þess háttar. Hvað er konan kölluð?

5.  Í hvaða landi berst upp­reisn­ar­hreyf­ing Houtha gegn rík­is­stjórn­inni og banda­mönnum hennar?

6.  Sonja heitir kona nokkur, sem varð drottn­ing í landi einu árið 1991. Hvaða land skyldi það vera?

7.  Þegar jarð­skjálfta­hrina og síðan eld­gos gengu yfir Reykja­nes í fyrra leit­uðu frétta­menn mjög ráða hjá skel­eggum jarð­skjálfta­fræð­ingi sem hafði reyndar verið um skamma hríð í vin­sælli rokk­hljóm­sveit á sínum tíma. Hvað heitir þessi jarð­skjálfta­fræð­ingur fullu nafni?

8.  Árið 1883 hóf hin svo­kall­aða Aust­ur­landa­hrað­lest göngu sína. Hvaða borg í Vestur-Evrópu var upp­hafs­stöð þess­arar lest­ar­línu?

9.  En í hvaða borg í aust­ur­vegi lauk lestin yfir­leitt ferð sinni?

10.  Hvað á fólk langoft­ast við þegar talað er um Roquefort?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir káti karl­inn hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Á Akureyri.

2.  Viðar Þor­steins­son.

3.  Julian Assange.

4.  Hnall­þóra.

5.  Jemen.

6.  Noregur.

7.  Kristín Jóns­dóttir.

8.  London.

9.  Kon­stant­ínópel (eða Istanbúl). Um skamma hríð lauk hún ferð sinni í Aþenu svo ég gef líka rétt fyrir ef ein­hver veit það.

10.  Ost.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á Bayeux-refl­inum er lýst orr­ust­unni við Hastings þegar Nor­mannar lögðu undir sig England.

Á neðri mynd­inni er hand­bolta­garp­ur­inn Alfreð Gíslason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár