711. spurningaþraut: Tvær grænar spurningar en hefðu getað verið fleiri!

711. spurningaþraut: Tvær grænar spurningar en hefðu getað verið fleiri!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða hafn­ar­borg má hér sjá úr lofti?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þegar saga ein var fyrst gefin út nefnd­ist hún Schneeweißchen. En hvað köllum við þessa sögu á íslensku?

2.  Aðfar­arnótt 23. maí 1941 sigldu tvö þýsk her­skip suð­vestur Græn­lands­sund milli Íslands og Græn­lands. Nefnið annað skipið. Ef þið getið nefnt bæði hár­rétt, þá fáiði að auki her­skipa­stig!

3.  Hvað heitir aðal­flug­völl­ur­inn við Kaup­manna­höfn?

4.  En Stokk­hólm?

5.  Flug­völl­ur­inn við Varsjá heitir eftir víð­kunnum tón­list­ar­manni. Hver var hann?

6.  Sá ágæti maður var meðal ann­ars kunnur fyrir leikni á eitt til­tekið hljóð­færi og í mörgum helstu verkum hans er það í aðal­hlut­verki. Hvaða hljóð­færi var það?

7.  John Lennon var líka tón­list­ar­maður. Hvað á hann nú sam­eig­in­legt með þessum fyrr­nefnda tón­list­ar­manni — annað en tón­list­ina? (Það er vænt­an­lega fleira en eitt, en ef þið vitið svarið, þá vitið þið svarið!)

8.  Um hvað snú­ast grænu spurn­ing­arnar í Trivial Pursuit?

9.  En hvað þýðir hug­takið „græna her­bergið“ þegar um sjó­bissniss marg­vís­an­legan er að ræða?

10.  Hver skrif­aði bók­ina Máva­hlátur sem út kom 1995?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver bylt­ist þar í loft­inu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mjall­hvít.

2.  Orr­ustu­skipið Bismarck og beiti­skipið Prinz Eugen.

3.  Kastrup.

4.  Arlanda.

5.  Chopin.

6.  Píanó.

7.  Flug­völlur hefur líka verið nefndur eftir Lennon — við Liverpool.

8.  Vísindi og tækni.

9.  Herbergi þar sem lista­menn hvíla sig fyrir og eftir sýn­ingu af hvaða tagi sem er.

10.  Kristín Marja Bald­urs­dóttir

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá St.Pét­urs­borg í Rúss­landi. Borgin er reist í óshólmum Nevu sem fellur úr Ladoga-vatni eins og sjá má.

Á neðri mynd­inni er hinn oflát­ungs­fulli Íkarus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár