710. spurningaþraut: Úkraína, fólk og saga

710. spurningaþraut: Úkraína, fólk og saga

Þessi þraut snýst um sögu Úkraínu, að gefnu til­efni.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá skjá­skot úr frægri kvik­mynd sem fjallar um upp­reisn sjóliða á skipi rúss­neska keis­ara­dæm­is­ins en fræg­asta sena þeirrar myndar ger­ist þó í úkra­ínskri borg. Skjá­skotið er úr þeirri senu. Hvað heitir borgin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Höf­uð­borg Úkraínu heitir Kyív eins og allir vita. Hún mun hafa verið stofnuð á 6. öld eftir Krist en á 9. öld gekk hún í end­ur­nýjun líf­daga þegar höfð­ingjar af öðru ætt­erni en heima­menn sett­ust þar að. Þeir gerðu borg­ina að mið­d­epli í nýju ríki sem þeir áttu þátt í að koma á fót. Hverjir voru þetta?

2.  Árið 988 varð mjög örlaga­ríkur atburður í því ríki sem þá stóð í hinni núver­andi Úkraínu. Menn sunnan úr Mikla­garði eða Kon­stant­ínópel komu þá og aðstoð­uðu við að ... hvað?

3.  Árið 1240 birt­ist óvígur her utan við borg­ar­hlið Kyív og eftir umsátur í rúma viku náði þessi her borg­inni og ger­eyddi íbú­unum. Hverjir voru þarna á ferð?

4.  Árið 1709 átti sér stað örlaga­rík orr­usta við bæinn Poltava í miðri Úkraínu þegar langt að kom­inn nor­rænn kon­ungur barð­ist við leið­toga Rússa. Hafði Rússinn sigur þrátt fyrir að for­ingi Kósakka á svæð­inu veitti nor­ræna kóng­inum lið. Hvað hétu þessir tveir leið­togar, nor­ræni kóng­ur­inn ann­ars vegar og Rússa­for­ing­inn hins vegar? — Og ef ein­hver skyldi nú vita það, þá fæst Kósakka­stig fyrir að vita hvað Kósakka­for­ing­inn hét.

5.  Frægasti rit­höf­undur Úkra­ínu­manna á 19. öld skrif­aði raunar á rúss­nesku eins og margir úkra­ínskir höf­undar hafa gjarnan gert. Hann er kunnur fyrir sveita­sögur úr úkra­ínsku umhverfi en líka fyrir næsta hroll­vekj­andi smá­sögur eins og Nefið og Frakkann. Hvað hét hann?

6.  Frægustu verk hans eru þó ann­ars vegar leik­ritið Eft­ir­lits­mað­ur­inn og svo hins vegar mikil skáld­saga sem fjallar ekki síst um ánauð­ina sem bændur í Rúss­landi og Úkraínu máttu þola langt fram á 19. öld, og sér í lagi verslun með bænd­urna. Hvað heitir sagan?

7.  Skelfi­legur atburður í sögu Úkraínu er nefndur á tungu heima­manna holodomor og hófst rétt upp úr 1930. Hvers konar atburður var holodomor?

8.  Árið 2014 var gerð bylt­ing í Úkraínu sem oft­ast er nefnd „virð­ing­ar­bylt­ingin“ opin­ber­lega, eða hvernig sem á að þýða Революція гідності. Í munni manna er bylt­ingin þó yfir­leitt nefnd eftir torgi því þar sem bylt­ing­ar­menn héldu aðal­lega til. Hvað heitir það?

9.  Pútin Rúss­lands­for­seti segir að sér sé einkum umhugað um vel­farnað íbúa í tveim hér­uðum Úkraínu sem eru byggð rúss­nesku­mæl­andi fólki að meiri­hluta. Hvað kall­ast þessi héruð einu nafni?

10.  Ásakanir Pútins Rúss­lands­for­seta um að í Úkraínu séu nas­istar upp um alla veggi eiga sér fáar stoðir í raun­veru­leik­anum, en þó eina. Her­flokkur einn sem nú er tengdur úkra­ínska her­lið­inu var stofn­aður m.a. af hrein­rækt­uðum nas­istum, þótt nú geti allur flokk­ur­inn ekki lengur flokk­ast þannig. En hvað nefn­ist þessi her­flokkur?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá úkra­ínsku leikkon­una Olgu Kurylenko í hlut­verki sínu í kvik­mynd einni. Olga er til hægri á mynd­inni. En hvað nefn­ist bíó­myndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Víkingar.

2.  ... kristna íbú­ana.

3.  Mongólar.

4.  Karl XII og Pétur mikli. Mazepa hét Kósakka­for­ing­inn.

5.  Gogol.

6.  Dauðar sálir.

7.  Hung­ursneyð — raunar af manna­völdum en hung­ursneyð dugar.

8.  Maidan.

9.  Donbass.

10.  Asov-her­deildin.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Atburð­ur­inn, sem til er vísað í fyrri spurn­ingu, ger­ist í Odesa.

Kvik­myndin sem spurt er um í seinni spurn­ingu heitir Quantum of Solace.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár