709. spurningaþraut: Hér er í boði sérstakt vinstribakkastig!

709. spurningaþraut: Hér er í boði sérstakt vinstribakkastig!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan? Myndin var tekin fyrir um ára­tug.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er kall­aður fyrsti form­legi keis­ari Róma­veldis?

2.  Íslend­ingar deildu lengi um það kringum alda­mótin 1900 hvar fyrsti íslenski ráð­herr­ann skyldi stað­settur þegar hann yrði loks skip­aður. En þeir töl­uðu þá reyndar ekki um RÁÐHERRA, heldur var emb­ættið kallað ... hvað?

3.  Hvar er bær­inn Tasilaq?

4.  Lee Harvey Oswald á sér sína neð­an­máls­grein í mann­kyns­sög­unni vegna þess að hann ... gerði hvað?

5.  Stofnun sem hét fullu nafni Geheime Staatspolizei er oft­ast kölluð ...?

6.  Will nokkur Smith fékk um dag­inn Ósk­arsverð­laun sem besti karl­leik­ar­inn í aðal­hlut­verki fyrir mynd­ina King Richard. Hver er þessi „King Richard“ sem Smith lék?

7.  En hver fékk Óskar fyrir bestu frammi­stöðu í aðal­hlut­verki kvenna fyrir hlut­verk sitt í The Eyes of Tammy Faye?

8.  Sturnus Vulgaris er nafn fugls eins á lat­ínu. Þessi fugl hóf að verpa við Horna­fjörð um 1940 en hefur nú dreifst um allt land og er til dæmis gríð­ar­lega algengur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Nokkuð var hann umdeildur í byrjun en flestir kunna núorðið ágæt­lega við hann. Hvað nefn­ist Sturnus Vulgaris á íslensku?

9.  Hvað eru þeir Dewey, Huey og Louie kall­aðir á Íslandi?

10.  Um hvaða borg var setið í 872 daga í síð­ari heims­styrj­öld­inni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi mynd var tekin í París árið 1930. Þið fáið stig ef þið getið bent á EINN karl á mynd­inni með nafni. En ef þið þekkið TVO, þá fáiði sér­stakt Vinstri­bakka­stig!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ágústus.

2.  Ráðgjafi.

3.  Á Græn­landi.

4.  Drap John F. Kennedy Banda­ríkja­for­seta.

5.  Gestapo.

6.  Faðir tenn­is­stjarn­anna Serenu og Venus Williams.

7.  Jessica Chastain.

8.  Starri.

9.  Ripp, Rapp og Rupp.

10.  Len­ingrad.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Jada Pinkett Smith. Eins og oft­ast þegar um útlend­inga er að ræða, þá dugir eft­ir­nafnið.

Á neðri mynd­inni munu flestir þekkja Salvador Dali í miðið í neðri röð­inni.

Dali árið 1930

Þetta eru helstu for­sprakkar súr­r­ea­lista (í víðum skiln­ingi) — frá vinstri Tristan Tzara, Paul Eluard, André Breton, Hans Arp, Dali, Yves Tanguy, Max Ernst, René Crevel og Man Ray.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár